Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is

Eikin ættar minnar - nýtt leikverk frumsýnt á Þingeyri

Eikin ættar minnar er nýtt leikverk um séra Ólaf Jónsson á Söndum, eitt af fyrstu tónskáldum Íslendinga.  Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Alls taka 20 leikarar þátt í sýningunni en í heildina koma um 50 manns að sýningunni.

Eikin ættar minnar verður frumsýnt föstudaginn 12. mars kl.20 í Félagsheimilinu á Þingeyri. Miðasala er hafin í síma: 848 4055.

Vegir liggja til allra átta, leik- og söngsýning í Edinborg

Leik- og söngstykkið Vegir liggja til allra átta hefur heldur betur slegið í gegn og hafa nú þegar um 500 manns séð sýninguna. Næsta sýninga verður 12. mars.  Miðasala í síma: 450 5555.

Elfar Logi Hannesson er höfundur leikgerðar ásamt því að leikstýra verkinu en tónlistarstjóri er Guðmundur Hjaltason. Á sviðinu koma fram um 20 leikarar og söngvarar ásamt hljómsveit. Vegir liggja til allra átta er sprellfjörug og rómantísk sýning þar sem flutt er úrval laga sem systkinin Ellý og Vilhjálmur Vilhjálmsbörn sungu á sínum tíma og hafa lifað með þjóðinni allar götur síðan.

Stórtónleikar Fjallabræðra á Flateyri

Tónleikar Fjallabræðra á Flateyri
Stórtónleikar Fjallabræðra til styrktar Krabbameinsfélaginu Sigurvon verða í íþróttahúsinu á Flateyri í kvöld kl. 20:00.

Vegir liggja til allra átta, leik- og söngsýning í Edinborg

Leik- og söngstykkið Vegir liggja til allra átta hefur heldur betur slegið í gegn og hafa nú þegar um 500 manns séð sýninguna. Næsta sýninga verður laugardaginn 13. mars, kl. 21.00.  Miðasala í síma: 450 5555.

Elfar Logi Hannesson er höfundur leikgerðar ásamt því að leikstýra verkinu en tónlistarstjóri er Guðmundur Hjaltason. Á sviðinu koma fram um 20 leikarar og söngvarar ásamt hljómsveit.

Messa í Ísafjarðarkirkju

Messa í Ísafjarðarkirkju kl. 11.00.  Prestur séra Magnús Erlingsson. Sigurveig Gunnarsdóttir prédikar.

Eikin ættar minnar - nýtt leikverk - önnur sýning á Þingeyri

Eikin ættar minnar, nýtt leikverk sýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri. 2. sýning sunnudaginn 14. mars kl. 20.  Miðasala í síma 848 4055.

3. sýning þriðjudaginn 16. mars kl. 20.

4. sýning laugardaginn 27. mars kl. 20.

 

Eikin ættar minnar er nýtt leikverk um séra Ólaf Jónsson á Söndum, eitt af fyrstu tónskáldum Íslendinga. Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Alls taka 20 leikarar þátt í sýningunni en í heildina koma um 50 manns að sýningunni.

Eikin ættar minnar - nýtt leikverk - þriðja sýning á Þingeyri

Eikin ættar minnar, nýtt leikverk sýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri. Miðasala í síma 848 4055. 3. sýning þriðjudaginn 16. mars kl. 20.  4. sýning verður laugardaginn 27. mars kl. 20.

Eikin ættar minnar er nýtt leikverk um séra Ólaf Jónsson á Söndum, eitt af fyrstu tónskáldum Íslendinga. Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Alls taka 20 leikarar þátt í sýningunni en í heildina koma um 50 manns að sýningunni.

Söngtónleikar í Hömrum á Ísafirði - frestað

Tónleikunum var frestað, þar sem ekki var flogið í dag.  Verða auglýstir fljótlega aftur.
Söngtónleikar í Hömrum miðvikudagskvöldið 17.mars kl. 20:00.

Fram koma söngkonurnar Sólveig Samúelsdóttir og Hallveig Rúnarsdóttir ásamt píanóleikaranum Hrönn Þráinsdóttur.  Á tónleikunum verða flutt einsöngslög og dúettar eftir Schumann og Mendelssohn.  Tónleikarnir eru 3.áskriftartónleikar Tónlistarfélagsins á starfsárinu.

Takið kvöldið frá!

Síðasti dagur Sveins skotta, frumsýning

Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið frumsýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði fimmtudaginn 18. mars., kl. 20. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhópinn. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Miðasala er hafin í síma 450 5565. Önnur sýning í Edinborg verður laugardaginn 20. mars kl. 20, en aðeins eru áætlaðar þessar tvær sýningar fyrir vestan.

Síðasti dagur Sveins skotta, önnur sýning

Kómedíuleikhúsið og Lýðveldisleikhúsið sýna nýtt íslenskt leikverk í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Önnur sýning í Edinborg verður laugardaginn 20. mars kl. 20. Verkið nefnist Síðasti dagur Sveins skotta og er eftir Benóný Ægisson og leikhópinn. Hér er á ferðinni kolsvört kómedía um Svein Björnsson þjóf, nauðgara og galdramann sem var hengdur í Rauðuskörðum á Barðaströnd árið 1648. Sveinn þessi var enn í móðurkviði þegar faðir hans Axlar-Björn var tekinn af lífi fyrir morðverk sín. Miðasala í síma 450 5565. 

Messa í Ísafjarðarkirkju

Messa í Ísafjarðarkirkju kl. 11.00. Prestur séra Magnús Erlingsson. Barnakór Tónlistarskólans syngur við athöfnina.

Eikin ættar minnar - nýtt leikverk - fjórða sýning á Þingeyri

Eikin ættar minnar, nýtt leikverk sýnt í Félagsheimilinu á Þingeyri. Miðasala í síma 848 4055.

4. sýning laugardaginn 27. mars kl. 20.

Eikin ættar minnar er nýtt leikverk um séra Ólaf Jónsson á Söndum, eitt af fyrstu tónskáldum Íslendinga. Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Alls taka 20 leikarar þátt í sýningunni en í heildina koma um 50 manns að sýningunni.

Pálmasunnudagur: Messa í Ísafjarðarkirkju

Messa í Ísafjarðarkirkju kl. 11.00. Prestur séra Magnús Erlingsson. Uppskeruhátíð kirkjuskólans.

Heilsugæslan sýnd í Arnardal

Miðvikudagur, 31. mars, kl. 21.00: HEILSUGÆSLAN, leikverk sýnt í Arnardal - miðasölusími: 860 6062

Trúbadúrinn Þröstur Jóhannesson með tónleika í Edinborg - frestað !

ATH! Tónleikunum hefur verið frestað vegna veikinda.
Miðvikudaginn 31. mars næstkomandi kl. 22.00 mun Þröstur Jóhannesson blása til tónleika í Bryggjusal Edinborgarhússins. Að þessu sinni mun Þröstur leika efni af væntanlegri plötu Svo langt sem það nær og kynna til sögunnar lögin Rauðmagablús og Skrítlu til heiðurs Sóloni í Slunkaríki og Nú er allt í steik. Einnig mun Þröstur leika efni af eldri útkomnum plötum. Miðaverð er kr. 1000,-

Vefumsjón