Dansýning finnskra og íslenskra listamanna í Edinborg
Hópur finnskra listamanna er nú í heimsókn hjá Listaskóla Rögnvaldara Ólafssonar. Í hópnum eru nemendur frá Turun Seudun Tanssioppilaitos og listamennirnir Marjukka Erälinna sirkuslistakona, Tommi Tommi hljóð- og slagverksleikari og Marko Erälinna ljósameistari. Gestirnir vinna ásamt nemendum LRÓ og dansaranum Hennu-Riikku Nurmi að verkinu Find Ice. Verkefnið hófst á Ísafirði vorið 2011 og fóru nemendur LRÓ ásamt Hennu-Riikku til Turku í Finnlandi í ágúst á síðasta ári. Tvær sýningar verða í Edinborgarhúsinu á Ísafirði, 20. júní kl. 17 og 21. júní kl. 19. Á fyrri sýningunum sýna nemendur LRÓ og Turun Seudun Tanssioppilaitos og á þeirri seinni sýna listamennirnir Henna-Riikka, Marjukka Tommi og Marko. Til liðs við þá koma ísfirskir listamenn, þeir Jón Sigurpálsson og Gunnar Jónsson myndlistarmenn og Margrét Gunnarsdóttir píanóleikari. Selt er inn á sýningarnar gegn vægu verði.
- Hvar?
Edinborgarhúsiđ, Ísafirđi - Hvenćr?
20. júní - Klukkan?
17:00 til 18:09














