Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
08.09.2010 - 15:34

Síminn ætlar að hækka verðskrána um næstu mánaðarmót

Síminn hvað ?
Síminn hvað ?
Síminn hækkar verð á þjónustu sinni frá og með 1. október um 4,5% miðað við meðalnotkun heimilis. Verðbreytingarnar má finna á töflu á heimasíðu Símans. Þar eru tilgreindar hinar fjölbreytilegustu gjaldskrárhækkanir. Sjá má að grunnáskrift að internetinu hækkar úr 3050 krónum í 3200 krónur, sem er 4,9% hækkun. Grunnáskrift heimasíma hækkar aðeins um rúmlega tvö prósent, úr 1665 krónum í 1700 krónur á mánuði. Þegar kemur að GSM-símtölum verður gjaldskráin líkt og frumskógur, en ljóst er að allir liðir hækka, hvort heldur er GSM-frelsi, ring, tveir vinir eða hvað það heitir. Upphafsgjald GSM-símtala hækkar úr 5,95 í 6,50 kr. í öllum kerfum, sem er 9,2% hækkun, en gjald fyrir algengt símtal í GSM-áskrift innan kerfa Símans hækkar úr 12,00 í 12,60 kr. sem er 5% hækkun. Símtöl í önnur farsímafyrirtæki eru dýrari....
Meira
08.09.2010 - 12:44

Bókun fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna: Ná þarf markmiðum ríkisstjórnarinnar

Mikil verðmæti eru fólgin í fiskinum. Hvaða reglur eiga að gilda um aðganginn að auðlindinni?
Mikil verðmæti eru fólgin í fiskinum. Hvaða reglur eiga að gilda um aðganginn að auðlindinni?
Nauðsynlegt er að við innköllun og endurúthlutun aflaheimilda sé tryggt að ríkið sé ávallt handhafi aflaheimilda og ráðstafi þeim aðeins tímabundið til leigu eða afnota. Þetta segja fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna í endurskoðunarnefnd um fiskveiðistjórnun í bókun sem þeir lögðu fram með skýrslu nefndarinnar. Þau Guðbjartur Hannesson og Svanfríður Jónasdóttir fulltrúar Samfylkingarinnar, og Björn Valur Gíslason og Lilja Rafney Magnúsdóttir fulltrúar Vinstri grænna, taka ekki afstöðu með eða á móti þeim leiðum sem ræddar eru í skýrslunni. Skutull.is birtir hér bókun fulltrúa Samfylkingar og Vinstri grænna í nefndinni.


Fulltrúar ríkisstjórnarflokkanna fagna því að samstaða ríki um að sett verði sérstakt ákvæði í stjórnarskrá, um náttúruauðlindir, ákvæði sem undirstrikar að fiskistofnarnir umhverfis landið eru sameign þjóðarinnar og þess gætt að úthlutun aflaheimilda sé tímabundinn afnotaréttur. Lokaorð bókunarinnar eru þessi: „Í skýrslunni eru gerðar ýmsar tillögur til úrlausnar á álitaefnum sem uppi hafa verið við stjórn fiskveiða á undanförnum árum. Sömuleiðis stillir starfshópurinn upp ýmsum valkostum sem rétt þykir að hafa í huga við framtíðarskipan laga um stjórn fiskveiða. Í þeim efnum teljum við fulltrúar stjórnarflokkanna, að nýta þurfi það besta úr fyrirliggjandi hugmyndum til að ná megi fram markmiðum stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar, um betra fiskveiðistjórnunarkerfi."

...
Meira
08.09.2010 - 10:55

Ólína Þorvarðardóttir: Skýrslan er áfangi en ekki lokaniðurstaða. Nú þarf að vinna málið pólitískt

Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður
Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður
Ólína Þorvarðardóttir alþingismaður og varaformaður sjávarútvegsnefndar Alþingis segir að skýrsla nefndar um endurskoðun fiskveiðistjórnunar sé áfangi en augljóslega ekki lokaniðurstaða málsins. Nú þurfi að taka málið og vinna það til fullnustu á pólitískum vettvangi.  „Nú reynir á hvort stjórnvöld hafa þann pólitíska kjark sem til þarf að fullnusta málið með þeim hætti að þjóðin (ekki bara hagsmunaaðilar í greininni) uni sátt við niðurstöðuna," segir Ólína á bloggi sínu á Eyjunni.

Ólína segir að bæði samningaleið og tilboðsleið, sem nefndar eru í skýrslunni geri ráð fyrir innköllun aflaheimilda á einu bretti og síðan einhverskonar samningum um endurúthlutun til tiltekins tíma. „Samningaleiðin er verr útfærð en tilboðsleiðin sem felur í sér ákveðna útfærslu, m.a. á verðmyndun kvótans og hvernig með skuli farið við endurúthlutunina. Samningaleiðin felur auk þess í sér ákveðnar hættur á að eignamyndun útgerðarinnar á aflaheimildum styrkist í sessi. Ég tel hana ekki nothæfa í óbreyttri mynd og því hallast ég að því að farin verði einhver sú leið sem byggir á því besta úr hinum leiðunum tveimur. Svo mikið er víst að markmiðin með þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru verða að nást - árangurinn þarf að verða varanlegur og hafinn yfir pólitískt dægurþras frá ári til árs."...
Meira
08.09.2010 - 09:10

Ótryggt atvinnuástand á Þingeyri: Vísir hf. byrjar vinnslu eftir fjórtán vikna stopp

Frá Þingeyri.  Mynd Ágúst Atlason
Frá Þingeyri. Mynd Ágúst Atlason
Forráðamenn fiskvinnslu Vísis hf. á Þingeyri hafa tilkynnt starfsmönnum að vinnsla hefjist að nýju í frystihúsinu mánudaginn 13. september eftir fjórtán vikna vinnslustopp.  Vísir hf. lokaði vinnslunni á Þingeyri hinn 1. júní og gaf upp hráefnisskort sem ástæðu.  Það er eitt kvótahæsta fyrirtæki landsins, Vísir hf. i Grindavík, sem rekur fiskvinnsluna á Þingeyri.  Vísir hf. er langstærsti atvinnurekandi á Þingeyri.  Þar störfuðu 25-30 manns síðasta vetur og fóru starfsmenn á atvinnuleysisskrá í sumar.  Síðasta vetur var vinna dregin saman í fiskvinnslunni og fengu flestir starfsmenn aðeins 80% starfshlutfall eftir áramót.  Ekki er vitað hve mikil vinna verður nú þegar vinnslan fer aftur af stað.
08.09.2010 - 07:05

Verkalýðshreyfingin undirbýr nýja kjarasamninga

Verkalýðshreyfingin undirbýr kröfugerð.  Mynd Ágúst Atlason
Verkalýðshreyfingin undirbýr kröfugerð. Mynd Ágúst Atlason
Kjarasamningar verkafólks eru flestir lausir frá og með 30. nóvember á þessu ári. Stéttarfélögin undirbúa nú nýja kjarasamninga og kröfugerð í samráði við félagsmenn sína. Viðræður við atvinnurekendur fara síðan af sað. Á heimasíðu Verk-Vest segir: „Þetta verða ekki auðveldar viðræður og í mörg horn að líta þegar kemur að hvar við eigum helst að setja áherslupunktana okkar. En það sem verður að vera alveg á hreinu er ef við ætlum að ná árangri þá verðum við að standa saman, þannig og eingöngu þannig náum við markmiðum okkar um mannsæmandi laun á vinnumarkaði." Jafnframt er nauðsynlegt að ríkisvaldið komi að samningum, svo sem verið hefur síðustu ár....
Meira
07.09.2010 - 15:30

Fjórðungsþing Vestfirðinga vill að Vestfirðir verði umhverfisvottað svæði

Hvesta í Arnarfirði. Umhverfisvottun þýðir væntanlega enga olíuhreinsistöð.  Mynd Ágúst Atlason
Hvesta í Arnarfirði. Umhverfisvottun þýðir væntanlega enga olíuhreinsistöð. Mynd Ágúst Atlason
Fjórðungsþing Vestfirðinga sem haldið var á Hólmavík um síðustu helgi samþykkti stefnuyfirlýsingu í mörgum liðum varðandi hagsmunamál Vestfirðinga.  Þingið samþykkti að sveitarfélög á Vestfjörðum skuli stefna að umhverfisvottun Vestfjarða í heild. Tillaga um málið kom fram frá sveitarstjórn Strandabyggðar, í framhaldi af áskorun Ferðamálasamtaka Vestfjarða á aðalfundi þess í sumar.  Fjórðungsþing samþykkti að fela stjórn sambandsins og framkvæmdastjóra að kynna hugmyndina og kanna vilja sveitarstjórna og sækja um aðild að Earth Check fyrir Vestfirði í heild ef viðbrögð verða jákvæð.  Sveitarfélög á Snæfellsnesi hafa þegar gefið slíka yfirlýsingu og hafið vinnu að verkefninu í samræmi við markmið sem sett eru.
07.09.2010 - 13:05

Skýrsla sáttanefndar lögð fram: Kvótasinnar reyna að eigna sér niðurstöðuna

Skýrsla sáttanefndarinnar kallar á frekari umræður og úrvinnslu. Mynd Kári Þór Jóh.
Skýrsla sáttanefndarinnar kallar á frekari umræður og úrvinnslu. Mynd Kári Þór Jóh.
Meirihluti svokallaðrar sáttanefndar, fulltrúar hagsmunaaðila í sjávarútvegi og stuðningsmenn núverandi kvótakerfis, reyna að eigna sér niðurstöðu nefndarinnar og vilja fara svokallaða samningaleið, sem tryggir núverandi kvótahöfum aðgang að fiskveiðiauðlindinni til næstu kynslóða. Guðbjartur Hannesson formaður nefndarinnar segir að vinna verði áfram að málinu eftir skýrslu nefndarinnar og margt sé óljóst um útfærslu á þeim leiðum sem nefndin fjallaði um. Gert er ráð fyrir að ríkisstjórnin skipi nefnd til að semja frumvarp til nýrra fiskveiðilaga í framhaldi af skýrslu nefndarinnar.
...
Það er ljóst að hagsmunaaðilar í sjávarútvegi sem tengjast kvótakerfinu og pólitískir bandamenn þeirra í Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki vilja fara samningsleið og að leigutíminn verði margir áratugir. Þannig hefur Einar Kr. Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og einn nefndarmanna sent frá sér yfirlýsingu sem birtist á dv.is, þar sem hann heldur því fram að nefndin sé sammála um að mæla með samningsleiðinni. Þar segir hann líka: „Mjög mikilvægt er að samningarnir verði til langs tíma, rétt eins og gilda mun við nýtingu orkuauðlinda sem ekki eru í einkaeigu."...
Meira
07.09.2010 - 11:30

Grænlandssetur í Bolungarvík í undirbúningi

Vitastígur 1 í Bolungarvík, þar sem Grænlandssetur var kynnt 21. júní 2010 á þjóðhátíðardegi Grænlendinga
Vitastígur 1 í Bolungarvík, þar sem Grænlandssetur var kynnt 21. júní 2010 á þjóðhátíðardegi Grænlendinga
Undirbúningsfélag fyrir Grænlandssetur hefur látið vinna tillögur með hugmynd að skipulagi sýningar og seturs í Bolungarvík. Það er Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur sem hefur unnið tillögu að Grænlandssetri í Bolungarvík.  Í frétt frá undirbúningsfélaginu segir að hugmyndir Guðfinnu séu góður grunnur til að byggja frekari vinnu á.  Gert er ráð fyrir að setrið verði til húsa á efri hæð Vitastígs 1 í Bolungarvík, þar sem undirbúningsfélagið hefur þegar fengið afnot af einu herbergi.  Nýlega fékk félagið nokkra sýningargripi ættaða frá Grænlandi, þjóðlegan fatnað úr selskinni og fleiri muni, sem áður voru til sýnis í Selasetrinu á Hvammstanga. Þeir eru nú til sýnis í húsnæði setursins. Grænlandssetrið í Bolungarvík er komið með feisbókarsíðu á netinu, þar sem áhugasamir geta fylgst með fréttum af undirbúningi málsins.

Í síðasta mánuði kom fyrsti Grænlendingurinn i heimsókn í húsnæði Grænlandsseturs í Bolungarvík. Það var leikkonan Makka Kleist frá Siimut leikhúsinu í Nuuk á Grænlandi, sem tók þátt í Act alone leiklistarhátíðinni á Ísafirði.  Þar sýndi hún einleik sem byggði á fornum Inuitafrásögnum.  Formaður undirbúningsfélagsins Jónas Guðmundsson sýslumaður í Bolungavík tók á móti Mökku Kleist og eiginmanni hennar og Elvari Loga Hannessyni leikara og leikhúsmanni á Ísafirði. Áttu þau góðar viðræður um möguleika á samskiptum Vestfirðinga og Grænlendinga á menningarsviðinu.
07.09.2010 - 09:20

Sirrý ÍS-84 landaði 1729 tonnum á síðasta fiskveiðiári: Trúlega heimsmet

Sirrý ÍS 84 frá Bolungarvík.  Mynd Jón Einar Snorrason
Sirrý ÍS 84 frá Bolungarvík. Mynd Jón Einar Snorrason

Sirrý ÍS-84 frá Bolungarvík landaði 1729 tonnum á síðasta fiskveiðiári. Það er líklega heimsmet í aflabrögðum á smábáti.  Sirrý er fimmtán tonna línubátur smíðaður 2004 í eigu Jakobs Valgeirs ehf.  Skipstjóri á Sirrý er Sigurgeir S. Þórarinsson. Báturinn fór 297 róðra á síðasta fiskveiðiári. Á því sést að ekki var slegið slöku við og gæftir voru góðar á árinu.  Þrír menn skipa þær tvær stöður sem eru um borð, vinnur hver í fjóra daga og tekur svo tveggja daga frí.  Auk þess eru átta landmenn sem beita línuna. Afli Sirrýjar er mest þorskur og ýsa sem fer til vinnslu í frystihúsi Jakobs Valgeirs ehf. í Bolungarvík.  Aflaverðmæti Sirrýjar á almanaksárinu 2009 var 269 milljónir króna.

...
Meira
07.09.2010 - 07:21

Daníel bæjarstjóri heimsækir Flateyri

Daníel Jakobsson bæjarstjóri ásamt Skarphéðni Ólafssyni skólastjóri Grunnskóla Önundarfjarðar og kennurunum Sigurði Hafberg og Maríu Hrönn Valberg
Daníel Jakobsson bæjarstjóri ásamt Skarphéðni Ólafssyni skólastjóri Grunnskóla Önundarfjarðar og kennurunum Sigurði Hafberg og Maríu Hrönn Valberg
Nýráðinn bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar, Daníel Jakobsson, kynnti sér starfsemi nokkurra stofnanna og fyrirtækja á Flateyri á öðrum starfsdegi sínum á fimmtudag.  Heimamaðurinn Eiríkur Finnur Greipsson oddviti Sjálfstæðisflokksins og formaður bæjarráðs leiddi hann um staðinn.  Daníel og Eiríkur Finnur heimsóttu Grunnskóla Önundarfjarðar, íþróttamiðstöðina og áhaldahúsið, leikskólann Grænagarð og fiskvinnsluna Eyrarodda. 


Það var Eiríkur Finnur Greipsson sem tók myndina sem fylgir fréttinni. 

Síða 1 af 341
Vefumsjón