Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
08.03.2010 - 15:40

18,1 milljón til Vestfjarđa

Vinnuver á Ísafirđi, byggt 1856 er eitt ţeirra húsa sem eru í endurbyggingu.
Vinnuver á Ísafirđi, byggt 1856 er eitt ţeirra húsa sem eru í endurbyggingu.
Húsafriðunarnefnd hefur birt yfirlit yfir styrki árið 2010. Af einstökum landshlutum kemur mest í hlut Vestfjarða til endurbyggingar gamalla húsa, 18,1 milljón auk styrkja til friðaðra húsa og friðaðra kirkna. Til endurbygginga gamalla húsa þarf að sækja um árlega og er umsóknarfrestur til 1. desember ár hvert. Ljóst er af yfirliti Húsafriðunarnefndar að töluvert er um að Vestfirðingar ráðist í endurbyggingar gamalla húsa en 52 hús eru á yfirlitinu, þó ekki hljóti þau öll styrk.

Meðal húsa á Ísafirði sem hljóta styrk eru Gamla Apótekið sem fær 1 milljón, Herkastalinn og Vinnuver - 500 þús. hvert, Silfurgata 6 og 7 fá 300 þús. hvert. Í Bolungarvík fær Einarshús 500 þús. og Miðstræti 3 fær 400 þús. Á Patreksfirði fær Vélsmiðjan (Sjóræningjasetur) 1,4 milljónir og Vatneyrarbúð milljón. Af öðrum húsum má nefna Eyrardalsbæinn (Melrakkasetur) sem fær 400 þús., Simbahöllina á Þingeyri sem fær 600 þús., Gamla kaupfélagið á Flateyri fær 400 þús. og Hvilft á Flateyri sem fær 300 þús. Stærsta styrkinn að þessu sinni hlýtur Síldarverksmiðjan í Djúpuvík á Ströndum, 2,4 milljónir króna.

Auk styrkja til endurbygginga húsa sem ekki eru friðuð, hlaut Sæbólskirkja á Ingjaldssandi styrk að upphæð 700 þús. Þá hlutu nokkrar friðaðar kirkjur á Vestfjörðum styrk: Staðarkirkja í Aðalvík 350 þús., Bænhúsið í Furufirði 300 þús., Eyrarkirkja í Seyðisfirði 350 þús., Stóra-Laugardalskirkja í Tálknafirði 500 þús., Staðarkirkja í Hrútafirði 300 þús. og  Kaldrananeskirkja í Bjarnarfirði 1 milljón.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.83 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón