09.02.2010 - 07:44
Ađalbjörg Sigurđardóttir í yfirkjörstjórn Ísafjarđarbćjar
Aðalbjörg Sigurðardóttir, kennari við Grunnskólann á Ísafirði hefur verið valin í sem aðalmaður í yfirkjörstjórn Ísafjarðarbæjar, að tillögu Í-listans. Varamaður hennar verður Björn Davíðsson. Kjör þeirra var staðfest á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku. Aðalbjörg tekur sæti Smára Haraldssonar í yfirkjörstjórn, en hún var áður varamaður hans. Á fundi bæjarstjórnar voru Smára þökkuð störf hans í yfirkjörstjórn. Tvennar kosningar standa nú fyrir dyrum á landinu, annarsvegar þjóðaratkvæðagreiðsla um lánasamninga í tengslum við Icesave og síðan almennar sveitarstjórnarkosningar í lok maí í vor.
Deila á Facebook
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.82 og er skráđ međ athugasemdinni.















