Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
11.03.2010 - 12:30

Borgarafundur um samgöngumál haldinn á Patreksfirði

Á Dynjandisheiði, milli Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu. Mynd Ágúst Atlason
Á Dynjandisheiði, milli Ísafjarðarsýslu og Barðastrandarsýslu. Mynd Ágúst Atlason
Almennur borgarafundur verður haldinn á Patreksfirði laugardaginn 13. mars í Félagsheimili Patreksfjarðar kl. 14.00.  Fundurinn er haldinn til stuðnings uppbyggingar á Vestfjarðavegi um Barðastrandarsýslu og gerð Dýrafjarðarganga.  Með Vestfjarðavegi verða tengdar saman byggðir á Vestfjörðum og þær tengdar við aðalþjóðvegakerfi landsins með góðum heilsársvegi.  Að fundinum standa einstaklingar búsettir á Vestfjörðum sem vilja öfluga byggð í fjórðungnum öllum.  Sami hópur stóð að fjölmennum fundi á Ísafirði í nóvembermánuði undir yfirskriftinni Áfram vestur!

Dagskrá fundarins á Patreksfirði er byggð upp líkt og á fundinum á Ísafirði.  Þorleifur Eiríksson, forstöðumaður Náttúrustofu Vestfjarða fjallar um umhverfismat fyrir Dýrafjarðargöng.  Gísli Eiríksson verkfræðingur hjá Vegagerðinni skýrir frá störfum nefndar sem skoðar möguleika á nýjum vetrarfærum vegi yfir Dynjandisheiði.  Stutt ávörp frá sveitarstjórnarmönnum og öðrum fulltrúum almennings: Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri Tálknafirði, Eggert Stefánsson Dýrfirðingur og Ísfirðingur, Páll Líndal Jensson Patreksfirði, Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða, Guðrún Eggertsdóttir Barðstrendingur, Sigurður Jón Hreinsson Arnfirðingur og Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar.


Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.191.80 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón