08.03.2010 - 09:00
Eikin ćttar minnar, nýtt vestfirskt leikverk á Ţingeyri
Það er mikið líf og fjör í leiklistarlífinu á Þingeyri, þar er verið að æfa nýtt vestfirskt leikverk sem verður frumsýnt 12. mars nk. klukkan 20.00 í Félagsheimilinu. Leikverkið tengist sögu Dýrafjarðar og má því segja að hér séu heimamenn að halda áfram að fjalla um eigin sögu, en í fyrra settu þau á svið leikverkið Dragedúkken. Leikurinn sá gerist í lok átjándu aldar og fjallar um kaupmanninn og tónskáldið Andreas Steenbach á Þingeyri. Nú er haldið enn lengra aftur í aldir því nýja leikverkið gerist í lok sextándu aldar og upphafi þeirra sautjándu.
Leikurinn nefnist Eikin ættar minnar. Klerkurinn Ólafur Jónsson var merkur maður fæddur um 1560 á Tálknafirði en varð prestur á Söndum í Dýrafirði 1596 og til æviloka. Var hann síðan kenndur við þann stað. Ólafur er eitt af fyrstu tónskáldum Íslandssögunnar. Það er því við hæfi að gera þessu höfuðskáldi góð skil á heimaslóðum.
Höfundur og leikstjóri verksins er Elfar Logi Hannesson og tónlistarstjóri er Krista Sildoja sem einnig sér um tónlistarflutning. Alls taka 20 leikarar þátt í sýningunni en í heildina koma um 50 manns að sýningunni.
Deila á Facebook

Eikin ættar minnar verður frumsýnt föstudaginn 12. mars kl.20 í Félagsheimilinu á Þingeyri. Miðasala er hafin í síma: 848 4055.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.80 og er skráđ međ athugasemdinni.