Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
03.02.2012 - 09:30

Fimm iđnađarmenn stofna Trésmiđju Ísafjarđar ehf.

Halldór Antosson, einn af frumkvöđlum Trésmiđju Ísafjarđar ehf.
Halldór Antosson, einn af frumkvöđlum Trésmiđju Ísafjarđar ehf.
Fjórir fyrrum starfsmenn Trésmiðjunnar TH ásamt Hjálmari Guðmundssyni trésmíðameistara, vinna nú að því að endurreisa glugga- og innréttingasmiðju á Ísafirði undir nafninu Trésmiðja Ísafjarðar ehf.  Þeir sem standa að fyrirtækinu eru Halldór Antonsson, Vignir Guðmundsson, Júlíus Ólafsson og Einar Björnsson, auk Hjálmars, sem er Ísfirðingur en hefur búið og starfað á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár.  Trésmiðja Ísafjarðar mun starfa í sama húsnæði og TH við Sundahöfn á Ísafirði. Fimmmenningarnir hafa samið við þrotabú TH og veðhafa um kaup á vélum og tækjum og munu setja vélarnar af stað næstu daga. Þeir segjast þegar hafa náð sér í verkefni til að hefja reksturinn og vera vel í stakk búnir til að bjóða í verkefni á sviði innréttinga um allt land.

Endurreisn trésmiðjunnar er mikið gleðiefni fyrir Ísafjörð, þar sem mikil reynsla og þekking er falin í faglærðum starfsmönnum fyrirtækisins, sem annars gæti tapast úr samfélaginu. Skutull.is óskar þeim félögum og nýju fyrirtæki þeirra bjartrar framtíðar.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón