Fullt út úr dyrum á fundi gegn kvótakerfinu í Sandgerði
Tíðindamaður skutuls.is, sem var á fundinum segir að í erindum framsögumanna hafi hræðsluáróðri LÍÚ verið svarað fullum hjálsi. Af fundinum er ljóst að það er gríðarlegur hugur í mönnum fyrir þá baráttu sem fram undan er. Fundarmenn sammæltust um þá kröfu að kvótinn yrði innkallaður, en á mun skemmri tíma en stjórnvöld hyggjast gefa sér, þ.e. krafan er um tafarlausa 100% innköllun. Krafan er sú að mannréttindabrot á íslenskum sjómönnum verði nú þegar stöðvuð. Í því samhengi var á það minnst að margir sitjandi þingmenn hefðu mótmælt mannréttindabrotum í fjarlægum löndum, en hinir sömu menn steinþegja yfir mannréttindabrotum á íslenskri grundu.
Lúðvík Kaaber rakti það hvernig atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar sem á að tryggja réttindi sem menn út um alla Evrópu gáfu líf sitt fyrir að tryggja á 19. öld væru nú fótum troðin á ný tæpum 200 árum seinna til að tryggja réttindi hóps manna til að einoka heila atvinnugrein. Það var einmitt það sem atvinnufrelsisákvæðinu var ætlað að koma í veg fyrir: að menn gætu einokað heilar atvinnugreinar líkt og verið hafði víðs vegar í Evrópu allt fram á 19. öldina. Gegn slíku oki voru háð stríð þar sem margir létu lífið fyrr á öldum. Eftir fundinn var hreint ótrúlegt að sjá þegar hver fundargesturinn á fætur öðrum kom og faðmaði frummælendur í þakklætisskyni fyrir fundinn. Áætlanir eru uppi um fleiri fundi af þessu tagi.
Frétt af fundinum birtist á dv.is í gær.
Deila á Facebook
Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.191.82 og er skráð með athugasemdinni.
















Smá athugasemd varðandi fundinn.Það voru vonbrigði að enginn þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi,sem höfðu víst verið höfðu verið boðaðir á fundinn, skyldu láta sjá sig.Jón nokkur Hannibalsson hafði verið auglýstur á fundinn í sólarhring, þegar undirritaður hringdi í hann og spurði hann hvort hann kæmi ekki örugglega á fundinn.Hann kom þá bara af fjöllum, eða Vestfjörðum, og sagði að það hefði verið hringt í sig fyrir hálftíma og hann hefði tjáð fundarboðendum það, að hann gæti ekki komið.Jón var hress eins og allir vita að hann er, og ég gat ekki heyrt að neinn veikindatónn væri í honum frekar en vanalega.Í upphafi fundar tjáði síðan Samfylkingarfundarstjórinn, Eiríkur Stefánsson fundargestum það að Jón væri veikur, sem hann auðvitað hefur verið.En mest söknuðu fundargestir, sem flestir voru hlustendur Útvarps Sögu, Vestfjarðaþingmannsins og fyrrverandi borgarfulltrúa í R.Vík, Ólínu Þorvarðardóttur.Hægt er að hugga sig við það að hún mun örugglega sitja við hlið Eiríks Stefánssonar á fundinum í Háskólabíói sem senn mun bresta á, að sögn Eiríks.Vonandi láta þá sem flestir Samfylkingarþingmenn sjá sig við hlið Eiríks, sem fékk sérstakar þakkir frá Grétari nokkrum Mar fyrir að hafa ekki boxað neinn á fundinum.Það er ekkert að óttast.Kv.