30.07.2010 - 09:10
Golfarar fara í snćrisleik á laugardaginn
Golfarar fara í snærisleik á golfvellinum í Tungudal á laugardaginn. Ræst verður út á öllum teigum kl. 10.00 en mæting er hálftíma fyrr í Golfskálanum. Snærisleikurinn fer þannig fram að áður en keppni hefst fá leikmenn snærisspotta samkvæmt forgjöf sinni og eiga allir að koma með skæri eða hníf til keppni. Maður með 2 í forgjöf fær 1 metra langan spotta en maður með 20 í forgjöf fær 10 metra langan spotta. Leyfilegt er að nota spottann til þess að færa boltann í allar áttir innan marka spottans, án þess að telja það sem högg. Þannig má færa boltann niður í holu, ef svo ber undir, án þess að telja það sem högg. En í staðinn fyrir að fá að færa boltann, verður að klippa af spottanum, þannig að hann styttist um sömu vegalengd og fært er hverju sinni.
Hér er um mjög skemmtilega leikaðferð að ræða og gott er að vera útsjónarsamur í þessum leik. Þannig verður viðkomandi að gæta þess að eyða ekki öllu snærinu sínu strax í upphafi og einnig er afar óhagstætt að sitja uppi með afgang að lokinni keppni. Skráning í Snærisleikinn er á golf.is og í golfskálanum fram að mætingu. Verðlaun fyrir bestan árangur verða:
1. þriggja mánuða áskrift að skjá Golfi.
Deila á Facebook

2. Saltaðir hnakkar og ýsa.
3. 5.000 króna úttekt í versluninni Þristi ehf í Hafnarstræti.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.82 og er skráđ međ athugasemdinni.