08.03.2010 - 07:41
Hérađssamband Vestfirđinga auglýsir eftir umsóknum í verkefnasjóđ
Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í verkefnasjóð sambandsins. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að styrkja útbreiðslu og átaksverkefni í íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Styrkveitingum er ætlað að efla íþróttastarf í sveitarfélaginu og auka aðgengi að einstökum íþróttagreinum.
Deila á Facebook
Umsóknarfrestur er til 14. mars 2010
Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV. Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.80 og er skráđ međ athugasemdinni.















