Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
10.02.2012 - 08:43

Hrađfrystihúsiđ-Gunnvör vill margfalda fiskeldi sitt á fjölda stađa í Inndjúpinu

Sá guli. Mynd Jón G. G/litlihjalli.is
Sá guli. Mynd Jón G. G/litlihjalli.is
Hraðfrystihúsið Gunnvör hefur sótt um leyfi til að byggja upp samtals sjö þúsund tonna fiskeldi á nokkrum stöðum innarlega í Ísafjarðardjúpi. Hingað til hefur Gunnvör mest náð að framleiða eitt þúsund tonn af þorski á ári. Bæta á við laxi og regnbogasilungi. Áform HG um stórfellda uppbyggingu í fiskeldi er til umfjöllunar hjá Umhverfisstofnun og Skipulagsstofnun og til umsagnar hjá þremur sveitarfélögum við Ísafjarðardjúp, Ísafjarðarbæ, Súðavíkurhreppi og Strandabyggð.  Í Fréttablaðinu segir að almennt virðist viðhorfið jákvætt til málsins, en því hafi engu að síður verið vísað í umhverfismat.


HG hf. hefur í allmörg ár rekið fiskeldi í Álftafirði, Seyðisfirði og Skötufirði í Súðavíkurhreppi. Fyrirtækið hefur mest náð að framleiða um eitt þúsund tonn af þorski, mest í áframeldi, en hefur leyfi til eldis á tvö þúsund tonnum. Með því að fá heimild til að framleiða allt að sjö þúsund tonnum á útvíkkuðu starfssvæði má segja að stefnt sé að því að sjöfalda framleiðsluna. Haft er eftir Einari Val Kristjánssyni í Fréttablaðinu að þróunin í tilraunaeldi á þorski sem staðið hafi í tíu ár hafi gengið hægar en menn væntu. Því vilji menn styrkja eldisþátt fyrirtækisins með eldi á laxi og regnbogasilungi sem sé einfaldari framleiðsla. „Við erum með eldisbúnaðinn, fólkið, skipin og sláturhús þannig að við erum með alla grunngerðina," segir Einar Valur.


Deila á Facebook
#1
10.02.2012 kl: 11:37
Ritstjórn Skutuls skrifar:

Skutull.is fékk ábendingu um ađ ekki sé alveg rétt međ fariđ í fréttinni. Skipulagsstofnun hefur ekki gefiđ út álit um hvort umsókn HG skuli fara í umhverfismat, allavega ekki ennţá. Hinsvegar hefur Strandabyggđ lýst ţví ađ sveitarfélagiđ telji ađ fram ţurfi ađ fara umhverfismat.

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón