Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
09.03.2010 - 16:00

Húsafriđunarnefnd styrkir húsakönnun og hverfisvernd á Ísafirđi um tvćr milljónir

Hverfisvernd í gamla bćnum á Ísafirđi fćr styrk. Mynd af horni Silfurgötu og Tangagötu, Ágúst Atlason
Hverfisvernd í gamla bćnum á Ísafirđi fćr styrk. Mynd af horni Silfurgötu og Tangagötu, Ágúst Atlason
« 1 af 2 »
Styrkir Húsafriðunarnefndar fyrir árið 2010 hafa verið kynntir, einsog fram kom á Skutli.is í gær.  Í yfirliti Húsafriðunarnefndar kemur fram að Ísafjarðarbær fær tvær milljónir í styrki til hverfisverndar og byggða- og húsakönnunar í svetiarfélaginu.  Annarsvegar er um að ræða 1 milljón króna til „fyrirbyggjandi húsafriðunar Ísafirði - götumynd, hverfisvernd,“ einsog það heitir og hinsvegar 1 milljón króna til byggða- og húsakönnunar í Ísafjarðarbæ.

Auk þess sem fram kom í frétt okkar í gær af styrkjum til endurbóta á gömlum húsum á Vestfjörðum að upphæð 18 milljónir króna, þá eru samþykkt framlög til friðaðra húsa rúmlega þrjár milljónir.  Þær skiptast þannig:
Aðalstræti 16 Ísafirði, bygginarár 1879: 500 þús. kr.
Jónassenshús Aðalstræti 8, Miðkaupstað Ísafirði, 1845: 150 þús. kr.
Salthúsið Þingeyri, byggt 1778:  1 milljón kr.
Riis-hús, Borðeyri, byggt 1862:   1,2 milljón kr.
Gamli barnaskólinn Hólmavík, 1903:  500 þús. kr.

Til viðbótar við upptalninguna í gær er vert að nefna að til húsa á Bíldudal og í Selárdal er veittir fjórir styrkir að upphæð 2,2 milljónir.  Þar ber hæst 1 milljón til endurbyggingar gamla Rafstöðvarhússins við Bíldudal, en það var ein elsta almenningsrafstöð á landinu, byggð 1918.  Gamla smiðjan á Bíldudal fær 500 þúsund króna styrk, Jónshús á Bíldudal 300 þúsund krónur.  Loks var úthlutað til endurbóta á Uppsalabænum í Selárdal 400 þúsundum, en þar bjó áður Gísli bóndi sem þjóðkunnur varð úr Stikluþáttum Ómars Ragnarssonar.

Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.81 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón