Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
06.02.2012 - 14:30

Hvađ á nýja hjúkrunarheimiliđ á Ísafirđi ađ heita?

Á slóđum nýja og gamla sjúkrahússins, ţar sem hjúkrunarheimili mun rísa. Mynd Ásthildur Cesil.
Á slóđum nýja og gamla sjúkrahússins, ţar sem hjúkrunarheimili mun rísa. Mynd Ásthildur Cesil.
Ísafjarðarbær efnir til samkeppni um nafn á væntanlegu hjúkrunarheimili á Ísafirði. Heimilið mun rísa á lóðinni neðan við nýja sjúkrahúsið við Hafnarstræti og Skutulsfjarðarbraut. Skilafrestur tillagna er til klukkan 12 á hádegi þann 5. mars. Tillögum má skila á netfangið: upplysingafulltrui@isafjordur.is. Í tilkynningu frá upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar segir: „Hafa má eftirfarandi tilmæli í huga þegar höfuðið er lagt í bleyti:

· Nafnið á að vera örvandi, jákvætt og hlýlegt.

· Nafnið þarf að mynda hjúp um það mikilvæga starf sem á að fara fram á heimilinu.

· Nafnið mætti gjarnan hafa skírskotun til gamalla gilda og sagna.

· Nafnið þarf helst að vera ótengt nafnagift annarra stofnana eða starfsemi á svæðinu.“

 

Sigurvegari hlýtur að launum svokallaðan "súperpassa" frá Ísafjarðarbæ, sem felur í sér árskort á skíðasvæðin á Ísafirði, í allar laugar bæjarins og í líkamsræktarsali á Suðureyri, Flateyri og Þingeyri. Ef fleiri en einn leggja til vinningsnafnið verður verðlaunahafi dreginn út.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón