Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
17.02.2010 - 08:07

Jafn og góđur afli berst til Bíldudals ţennan veturinn

Fiskverkakonur á Bíldudal.  Mynd Jón Ţórđarson
Fiskverkakonur á Bíldudal. Mynd Jón Ţórđarson
Á Bíldudal starfar fiskvinnslan Perlufiskur ehf.  Fyrirtækið gerir út 15 tonna bát á línu og nefnist hann Selma Dröfn BA 21.  Selma Dröfn hefur aflað vel að undanförnu einsog fleiri Vestfjarðabátar. Hún kom með 35 tonn að landi á Bíldudal í janúar í 8 veiðiferðum. Aflinn er að mestu þorskur.  Fyrri hluta febrúar hefur Selma Dröfn landað tvisvar, samtals 10 tonnum og skiptist aflinn nokkuð jafnst milli þorsks og steinbíts.  Annar bátur er nýhafinn veiðar á Bíldudal. Það er Kristín Ólöf ÞH 177 frá Húsavík.  Hún á þrjár landanir vikuna 8. - 13. febrúar, alls 10,4 tonn, þar af 6,5 tonn af þorski og rúm 3 tonn af steinbít.  Í janúarmánuði landaði dragnótabáturinn Þorsteinn BA 1 á Bíldudal. Þorsteinn er 71 tonna stálbátur.  Síðari hluta janúar kom hann með 23 tonn af þorski og ýsu til Bíldudals.

Rækjuveiðar í Arnarfirði eru í fullum gangi.  Brynjar BA 128 hefur komið með rúmlega 20 tonn af rækju síðasta mánuðinn til Bíldudals. Aflinn er frá einu og upp í þrjú og hálft tonn í róðri. Ekki hefur verið unnin rækja á Bíldudal í mörg herrans ár og er aflanum öllum ekið burtu til vinnslu.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.81 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón