09.03.2010 - 13:27
Karlmenn og krabbamein eru ekkert einkamál
Krabbameinsfélag Íslands leggur áherslu á fræðslu og umræður um karlmenn og krabbamein nú í marsmánuði. Í því sambandi hefur félagið hrudið af stað táknrænni herferð fyrir yfirvaraskeggi hjá körlum: Mottu mars! Rannsóknir hafa sýnt að þótt færri karlmenn fái krabbamein en konur, greinist það oft seinna og því eru batahorfur verri. Þetta eru synir, bræður, pabbar, afar, vinir og makar einhverra þannig að þetta er ekkert einkamál. Árlega greinast á Íslandi að meðaltali 716 karlar með krabbamein og deyja aðmeðaltali 278. Rannsóknir sýna að koma má í veg fyrir að minnsta kosti 1 af hverjum 3 krabbameinum.
Deila á Facebook
Af hverju yfirvaraskegg?
Yfirvaraskegg er táknrænt. Það auðveldar umræðu um það sem erfitt er að ræða. Krabbamein í karlmönnum hefur verið feimnismál allt of lengi. Krabbameinsféalgið býður fyrirtækjum að styrkja þetta góða átak með kaupum á pinna með yfirvaraskeggi fyrir starfsfólk sitt. Verðið er 1.500 kr. Nánari upplýsingar er að finna á www.karlmennogkrabbamein.is . Sjá einnig: http://www.youtube.com/watch?v=atROMgM7yPs .
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.81 og er skráđ međ athugasemdinni.















