Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
12.03.2010 - 14:53

Körfubolti í kvöld: Síđasti heimaleikurinn og bikar á loft !

Meistarar 1. deildar 2010: KFÍ
Meistarar 1. deildar 2010: KFÍ
KFÍ fær Ármann í heimsókn í kvöld kl. 19.15 í síðasta leik meistaraflokks í vetur.  Eins og flestir vita þá hefur KFÍ þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og því er von á miklu "húllumhæi" á leiknum í kvöld, auk þess sem formaður og framkvæmdarstjóri KKÍ afhenda liðinu deildarmeistarabikarinn í lok leiksins.  KFÍ tryggði sér 1. deildartitilinn með öruggum sigri á ÍA, 112-58, á heimavelli þann 28. febrúar.  KFÍ leikur því í Iceland Express deildinni á næsta keppnistímabili.  Síðan þá brá liði sér til Þorlákshafnar í síðasta útileikinn gegn Þór Þorlákshöfn. Þar vann KFÍ 67-76. 

Í kvöld kl. 19.15 er það svo síðasti leikurinn í Íþróttahúsinu á Torfnesi á Ísafirði, gegn Ármanni og svo....  1. deildarbikarinn!  Þess má geta að Ármann vann fyrri leik liðanna í vetur 83-77 og á því KFÍ harma að hefna.  Ísfirðingar og nágrannar eru hvattir til að fjölmenna á leikinn: ÁFRAM KFÍ !

Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.81 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón