23.02.2010 - 11:27
Kynningarfundir frambjóđenda í prófkjöri Í - listans: Ţingeyri í kvöld
Frambjóðendur í prófkjöri Í - listans í Ísafjarðarbæ halda kynningarfundi á þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins næstu daga. Þar munu frambjóðendur ræða við kjósendur um áherslur sínar og bæjarmálin. Fyrsti fundurinn er í kvöld á Þingeyri kl. 20.00 í Simbahöllinni. Áhersla er lögð á að kjósendur í Ísafjarðarbæ geti komið og hitt frambjóðendur í þægilegu umhverfi og átt við þá uppbyggilegar umræður og spurt þá spurninga sem brenna á bæjarbúum. Frambjóðendur Í - listans standa sameiginlega að kynningu fyrir prófkjörið, með útgáfu bæklings sem dreift hefur verið í hvert hús og fyrirtæki í sveitarfélaginu og með sameiginlegum kynningum. Frambjóðendum sjálfum er ekki heimilt að leggja í auglýsingakostnað vegna framboðsins.
Kynning frambjóðenda Í - listans verður á eftirtöldum stöðum:
Þingeyri, þriðjudaginn 23. febrúar, kl. 20.00 í Simbahöllinni.
Deila á Facebook
Kynning frambjóðenda Í - listans verður á eftirtöldum stöðum:
Þingeyri, þriðjudaginn 23. febrúar, kl. 20.00 í Simbahöllinni.
Flateyri, miðvikudaginn 24. febrúar, kl. 17.00 í Félagsbæ.
Suðureyri, miðvikudaginn 24. febrúar, kl. 20.00 í veitingahúsinu Talisman.
Ísafirði, fimmtudaginn 25. febrúar, kl. 20 í kosningamiðstöðinni Aðalstræti 24 á Ísafirði.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.84 og er skráđ međ athugasemdinni.















