Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
01.03.2010 - 19:30

Leiđrétting frá fulltrúaráđi sjálfstćđisfélaganna í Ísafjarđarbć.

Fulltrúarráð sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðabæ hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu.

"Vegna fréttar á www.skutull.is frá því fyrr í dag um styrki til stjórnmálaflokka fyrir sveitarstjórnarkosningar í Ísafjarðarbæ 2006, vill stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ taka fram að enginn styrkur kom frá samgönguráðuneytinu til flokksins.


Við vinnslu á bréfi því er fréttin byggir á var farið eftir gögnum frá kosningastjóra, sem starfaði við áðurnefndar kosningar. Þar var styrkur frá Bergþóri Ólasyni persónulega, sem þá starfaði sem aðstoðarmaður samgönguráðherra, ranglega skráður inn sem styrkur frá samgönguráðuneytinu.


Stjórn fulltrúaráðsins hefur bankayfirlit sem sýna að þessi upphæð kom af persónulegum bankareikningi Bergþórs.

Þetta mál hefur því ekkert að gera með samgönguráðuneytið eða fyrrverandi samgönguráðherra, Sturlu Böðvarsson.

Stjórnin harmar þessi mistök við ritun bréfsins.


Fh. stjórnar fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ

Ingólfur Þorleifsson
formaður"

 

Bergþór Ólafsson hefur staðfest að hann hafi sjálfur veitt styrk að verðmæti kr. 100.000. Bergþór harmar að þessi miskilningur hafi komist á stjá.

 

Ristjórn Skutuls birtir leiðréttingu orðrétta og skáletraða, en ítrekar að gögnin sem vitnað var í voru röng og að haft var samband við Níels R. Björnsson gjaldkera, sem undirritaði upphaflega bréfið við vinnslu fréttarinnar í dag. Níels vildi ekki tjá sig og leitaði ekki eftir því að leiðrétta bréfið. Ritstjórn Skutuls á von á gögnum frá Samgönguráðuneyti um styrkveitingar ráðherra árið 2006.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.209 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón