Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
10.03.2010 - 12:39

Magnús Reynir vill að byggðamerki Ísafjarðarkaupstaðar verði merki sveitarfélagsins

Núverandi merki Ísafjarðarbæjar. Gamla merki Ísafjarðarkaupstaðar lengst til vinstri
Núverandi merki Ísafjarðarbæjar. Gamla merki Ísafjarðarkaupstaðar lengst til vinstri
Magnús Reynir Guðmundsson hyggst leggja fram tillögu í bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar um að byggðamerki Ísafjarðarbæjar verði aðeins eitt og það verði gamla merki Ísafjarðarkaupstaðar.  Magnús Reynir lagði málið fyrir í bæjarráði síðasta mánudag.  „Það hefur vakið mikla athygli að Ísafjarðarbær er með fjögur skjaldarmerki, en ekki eitt, líkt og flest önnur sveitarfélög,“ segir Magnús Reynir í viðtali við skutul.is.  Lengi hefur verið rætt um byggðamerki fyrir Ísafjarðarbæ og meðal annars var haldin samkeppni um nýtt merki árið 2007, en dómnefnd hafnaði öllum tillögum sem fram komu.  Magnús Reynir hefur oft vakið máls á þessu í bæjarstjórn og telur að nú sé kominn tími til að komast til botns í málinu, fyrir næstu bæjarstjórnarkosningar.

Deila á Facebook
#1
10.03.2010 kl: 13:05
Sigurjón skrifar:

Nýtt skjaldarmerki er ekki tímabært sem stendur. Líklegt er að sameining verði við Bolungarvík og Súðavíkurhrepp, þá mun byrja nýtt skjaldarmerkis karp. Skjaldarmerki Bolungarvíkur er nánast eftirlíking af Ísafjarðar-merkinu, svo það gæti verið gott að fá eitthvað nýtt.

Skjaldarmerki Bolungarvíkur e.t.v. http://bolungarvik.is/

#2
10.03.2010 kl: 18:22
sigurdur j.hafberg skrifar:

Auðvitað finnum við nýtt merki. Það hlýtur að vera hægt að búa til eitt merki sem höfðar til alls svæðisins. Það gengur ekki að taka merki frá einum byggðakjarna, það gæti valdið endalausum misskilningi, enda trúi ég að ísfirðingar vilji eiga sitt gamla merki sem merki ísafjarðarkaupstaðar en ekki Ísafjarðarbæjar.Ef þetta er eitthvað vandmál þá skal ég búa til flott merki
kv sighaf

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.191.82 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón