Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
11.03.2010 - 09:33

Mikill meirihluti vill innkalla allan kvótann samkvćmt nýrri skođanakönnun

Meirihlutinn vill innkalla kvótann og leyfa strandveiđar.  Mynd Kári Ţór Jóhannsson
Meirihlutinn vill innkalla kvótann og leyfa strandveiđar. Mynd Kári Ţór Jóhannsson
Mikill meirihluti þjóðarinnar vill innkalla allan kvóta á Íslandsmiðum. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar sem birt er í nýjasta tölublaði Útvegsblaðsins.  Könnunin sýnir að 61% svarenda vilja innkalla allan kvóta, en 39% eru á móti því.  Þegar spurt er hvort fólk sé sammála fyrningarleið í sjávarútvegi skiptast svörin hinsvegar næstum jafnt, 51% segist sammála en 49% ósammála.  Stuðningur við strandveiðar er yfirgnæfandi, 78% svarenda sögðust fylgjandi strandveiðum en aðeins 22% voru á móti.

Könnunin var gerð á vegum skoðanafyrirtækisins Púlsinn, sem er rekið af Netleiðum, fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsrannsóknum og netauglýsingum. Ekki kemur fram í Útvegsblaðinu hvernig könnunin var framkvæmd, hvernig úrtakið var valið eða hvert svarhlutfallið var.  Fram kemur að alls svöruðu 2211 spurningunni um fyrningarleiðina, 1125 voru sammála henni, en 1086 svöruðu neitandi.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.81 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón