Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
03.02.2012 - 14:15

Mistök í álagningu fasteignaskatts í Ísafjarđarbć: Bćjaryfirvöld fóru fram úr lögum!

Forráđamenn Ísafjarđarbćjar fóru yfir leyfileg mörk í álagningu fasteignaskatts
Forráđamenn Ísafjarđarbćjar fóru yfir leyfileg mörk í álagningu fasteignaskatts
Mistök voru gerð við álagningu fasteignaskatta í Ísafjarðarbæ fyrir árið 2012. Við gerð fjárhagsáætlunar var ákveðið að lækka álagningarprósentu vatnsgjalds og holræsagjalds, en hækka þess í stað álagningu fasteignaskatts. Þessir þrír skattar ásamt sorpgjöldum og lóðarleigu kallast einu nafni fasteignagjöld. Eftir að álagningarseðlar voru sendir út í síðustu viku, kom í ljós að Ísafjarðarbær hafði farið fram úr lögum varðandi hámark leyfilegs fasteignaskatts á íbúðarhúsnæði. Leyfileg hámarksálagning fasteignaskattsins er 0,625% af fasteignamati, en ekki 0,65 eins og bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hafði samþykkt. Þetta þarf að leiðrétta. Reiknað er með því að það verði gert með því að lækka fasteignaskattinn, en hækka um leið vatnsgjaldið, þannig að álagning fasteignagjalda í heild verði sú sama. Það þarf að leggja fyrir bæjarstjórn.

Á heimasíðu Ísafjarðarbæjar er yfirlýsing frá Daníel Jakobssyni bæjarstjóra, þar sem hann útskýrir mistökin sem urðu við álagningu fasteignagjalda og biður jafnframt íbúa sveitarfélagsins velvirðingar á þessum mistökum bæjaryfirvalda:

Yfirlýsing bæjarstjóra Ísafjarðarbæjar
Þau leiðu mistök urðu við ákvörðun um álagningu fasteignagjalda að fasteignaskattur, sem er ein þriggja prósentuálagninga fasteignagjalda, var hækkaður meira en til stóð. Ætlunin var að hækka fasteignaskatt í lögbundið hámark en lækka vatns- og holræsagjöld á móti svo heildarútkoman yrði sú sama fyrir húseigendur, eða 1,08% af fasteignamati.


Þessi mistök eru sérstaklega hvimleið með tilliti til þess að álagningu fasteignagjalda er lokið og þýðir þetta að leggja þarf á að nýju. Ætlunin er að jafna út vatnsgjald til móts við fasteignaskatt þannig að niðurstaðan verði sú sama, heildarálagning upp á 1,08% af fasteignarmati sem er sama prósentutala og árið 2011. Heildarupphæð greiðenda ætti því að vera óbreytt og þurfa þeir sem hafa þegar greitt sín fasteignagjöld engu að breyta.


Það skal tekið fram að þessar breytingar eru tilkynntar með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar.


Álagningin verður aðgengileg á www.island.is, en einnig er hægt að óska eftir nýjum seðlum með því að hafa samband við innheimtufulltrúa á innh@isafjordur.is eða í síma 450-8000.


Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis 2011 og 2012

                                  2011      2012(núna)   2012 (eftir fyrirh. breyt.)
Fasteignaskattur    0,45%    0,65%            0,625%
Holræsagjald         0,33%    0,25%            0,25%
Vatnsgjald               0,30%    0,18%           0,205%
Fasteignagjöld
samtals                  1,08%    1,08%            1,08%

 

Beðist er velvirðingar á þessu.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.210 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón