08.02.2010 - 09:38
NMT farsímakerfinu lokađ 1. september
NMT-farsímakerfi Símans heyrir brátt sögunni til. Allt frá árinu 2000 og í kjölfar uppbyggingar á GSM og uppsetningu langdrægra GSM-stöðva hefur notendum fækkað og jafnframt var framleiðslu notendabúnaðar hætt fyrir nokkru síðan. NMT-kerfið hefur lengst af þjónað dreifðari byggðum og sjófarendum. Síminn rekur farsímakerfið á tilteknu tíðnisviði og er rekstrarleyfi og skuldbindingum vegna þess úthlutað af Póst og fjarskiptastofnun. Rekstrarleyfið gerði ráð fyrir að kerfinu yrði lokað frá og með 1. janúar 2007 en vegna þess að fjöldi notenda í NMT-kerfinu gat ekki hagnýtt sér útbreiðslusvæði GSM, fyrr en undir síðustu mánuði, hefur lokun NMT-kerfisins verið frestað ítrekað, jafnan um ár í senn.
Í janúar 2009 framlengdi Póst- og fjarskiptastofnun rekstrarleyfið til ársloka 2009 og óskaði um leið eftir því að Síminn og aðrir hagsmunaaðilar legðu fram ítarlegri gögn um þéttleika útbreiðslu á 3G og GSM. Nú í lok janúar gaf Póst- og fjarskiptastofnun út framlengingu á rekstrarleyfinu til 1. september 2010 en þá er búist við að kerfið verði endanlega tekið úr notkun.
Síminn hefur nú þegar fækkað rásum og slökkt á 15 stöðvum í NMT-kerfinu, á Vestfjörðum eru þessar stöðvar á Mikladal milli Patreksfjarðar og Tálknafjarðar, Tjaldanesi í Arnarfirði, Sandafelli í Dýrafirði, Nauteyri í Ísafjarðardjúpi og á Hólmavík og Ennishöfða. Á næstu mánuðum verður lokað 28 stöðvum til viðbótar, en þeim sendum sem þá eru eftir, sem eru 87 talsins, verður lokað 1. september og lýkur þar með sögu NMT-farsímakerfisins á Íslandi.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.81 og er skráđ međ athugasemdinni.