24.08.2008 - 10:00
Netheimar ósáttir viđ samning MÍ um tölvukaup
Netheimar ehf. hafa gert "alvarlegar athugasemdir" vegna samkomulags Snerpu og Menntaskólans á Ísafirði um tölvukaup sem frá hefur verið greint í fréttum undanfarna daga. Þar hefur m.a. komið fram að forsvarsmenn Menntaskólans hafi ráðlagt nemendum að bíða með ákvörðun um fartölvukaup þar til fyrir lægi niðurstaða útboðs á vegum skólans og einnig viðrað þær hugmyndir að greiða nemendum sem ættu þegar fartölvur leigu fyrir afnot, en síðar var fallið frá þeirri hugmynd. "Eftir að niðurstaða útboðs liggur fyrir þá kemur í ljós að hún er svo hagstæð að forsvarsmenn MÍ telja það skyldu sína að niðurgreiða fartölvur fyrir þá nemendur sína sem ekki hafa þegar fjárfest í fartölvum" segir í athugasemd Netheima. Þar segir ennfremur:
"Hér skal ekki dregið í efa að hugsunin að baki þessu brölti forsvarsmanna skólans er einlæg þó draga megi í efa að allar hliðar málsins og afleiðingar hafi verið skoðaðar. Hér eru sjónarmið jafnræðis nemenda ásamt samkeppnissjónarmiðum sem vega þungt að okkar mati enda hvergi að finna í lögum um framhaldsskóla ákvæði um að þær stofnanir eigi að vera virkar á samkeppnismarkaði smásölu. Að okkar mati hefur MÍ á einkar klaufalegan hátt, blandað sér inn í eðlilegt samkeppnisumhverfi og með því lagt sinn skerf til þess að skekkja enn frekar þann markað. Hvar hyggst MÍ bera niður næst ? Gera samning við t.d. Office 1 um niðurgreiddar námsbækur og ritföng svo einn af fjölmörgum möguleikum sé nefndur. Í kynningu MÍ undanfarna daga hefur hvergi komið fram að ætlun skólastjórnenda sé að efla kennslu í tölvufræðum eða upplýsingatækni. Er það afar sérkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að skólinn hefur alla tíð lagt litla áherslu á þau fræði og verið aftarlega á merinni í samanburði við aðra skóla. Eðlilegt mætti telja að jafnhliða tugmilljóna króna fjárfestingu í tölvubúnaði hefði verið lögð fram kynning á metnaðarfullri og stórefldri tölvufræðslu við skólann. Það er afar mikill misskilningur hjá stjórnendum skólans að hægt sé að kaupa sig frá frumskyldu þeirra - að halda úti öflugu og framsæknu fræðslustarfi - með tækjakaupum og hástemmdum og slagorðakenndum yfirlýsingum. Þrátt fyrir þessa óvæntu samkeppni, niðurgeidda af opinberu fé, munu Netheimar eftir sem áður bjóða eins fjölbreytt úrval fartölva og kostur er þrátt fyrir tilburði til innleiðingar „ríkisfartölvunar" (MíOk-tölvan) og minna á að grátt er ekki einn af litum regnbogans!"
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.179.206 og er skráđ međ athugasemdinni.

Nú ţykir mér sumir vera ađ skjóta sig í fótinn :D