Landsmálavefur á Vestfjörðum | skutull@skutull.is
27.02.2010 - 21:30

Niðurstöður prófkjörs Í-listans

Efstu fimm í prófkjöri Í-listans.
Efstu fimm í prófkjöri Í-listans.
Prófkjör Í-listans í Ísafjarðarbæ fór fram í dag. Í prófkjörinu gafst íbúum Ísafjarðar tækifæri á að kjósa efstu fimm sæti á framboðslista Í-listans fyrir sveitarstjórnarkosningar sem fara fram 29. maí næstkomandi. Kjörstjórn hefur sent frá sér tilkynningu með niðurstöðu úr prófkjöri.

Alls greiddu 421 atkvæði og voru gildi atkvæði 411.

Atkvæði féllu þannig:
Sigurður Pétursson, bæjarfulltrúi. 178 atkvæði í 1. sæti
Arna Lára Jónsdóttir, bæjarfulltrúi 183 atkvæði í 1. -2. sæti
Kristján Andri Guðjónsson 173 atkvæði í 1. -3.
Jóna Benediktsdóttir, bæjarfulltrúi. 229 atkvæði í 1. - 4. sæti
Lína Björg Tryggvadóttir. 196 atkvæði í 1. - 5. sæti.

 

Í-listinn er sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, Frjálslynda flokksins og óháðra.


Deila á Facebook
#1
27.02.2010 kl: 21:48
venstre skrifar:

Semsagt sama liðið og síðast. Að vísu KAG inn fyrir MRG. Held að maður halli sér til hægri með vorinu. Léleg þátttaka miðað við að þetta er opið í alla enda. En með KAG er aftur kominn meirihluti gegn fyrningarleið í bæjarstjórn.

#2
27.02.2010 kl: 21:49
Jóhann skrifar:

Frú Intrum í baráttusætinu!

#3
27.02.2010 kl: 21:57
Arnar skrifar:

Flott hjá Kristjáni Andra að ná 3ja sætinu.

#4
28.02.2010 kl: 01:46
Hannes skrifar:

Frú Intrum!?! Jóhann hvurslags mann hefur þú að geyma, þetta er það ómálefnalegasta sem ég hef séð og skömm af því að tala svona. Greinilega verið að leggja línurnar einhversstaðar um hvernig baráttu á að stunda.

Hélt að taka ætti fyrir svona rugl baráttu með hinu nýja Íslandi og ræða málefni í stað þess að vera með endalausar smjörklípur.

Farðu nú að hugsa þinn gang Jóhann.

#5
28.02.2010 kl: 02:22
Ásthildur Cesil Þórðardóttir skrifar:

Ég hefði viljað sjá alla þrjá flokkana í fyrstu þrem sætum. En ég er sátt við niðurstöðuna að öðruleyti, sérstaklega er ég ánægð með Kristján Andra í þriðja sætinu.
Ég tel þetta vera flottan lista sem vel er hægt að treysta fyrir málefnum bæjarins. Allt saman gott og málefnalegt fólk. Sem mun vinna bæjarfélaginu vel. Ég óska Línu Björg til hamingju með að hafa hlotið fimmta sætið, sem ég tel vera baráttusæti Í listans. Hún á ættir til þess að gera vel og standa sig. Til hamingju öll, þetta var glæsilegt.

#6
28.02.2010 kl: 11:44
Ísfirðingur skrifar:

Flottur listi. Glæsileg úrslit. Nú má Sjallinn fara að vara sig! - Enda strax byrjaðir í skítkastinu.

#7
28.02.2010 kl: 13:21
venstre skrifar:

Sé ekki hvers vegna sjálfstæðismenn þurfa að vara sig. Þetta er sama fólkið og tapaði fyrir þeim síðast. Ég get ekki séð að þessi listi eigi mörg atkvæði í úthverfunum, allt Ísfirðingar í 5 efstu sætunum. Verð að segja að listi sjálfstæðisflokksins lítur mun betur út. Að vísu er þessi listi ekki fullmannaður, en það verður tæplega breyting á fimm efstu sætunum.

#8
28.02.2010 kl: 13:40
fyrrum sjómaður skrifar:

"Flott hjá Kristjáni Andra að ná 3ja sætinu"? Hvað er svo flott við Kristján Andra? Að hann er á móti fyrningarleiðinni og vill viðhalda núverandi forréttindakerfi fárra? Flestir núverandi "eigendur" kvótans hafa ekki dýft hendi í kalt vatn. Þessu þarf að breyta, þeir einir fái kvóta sem sækja fiskinn eigin hendi. "Útgerðarmenn" eru óþarfur milliliður, líkt og heildsalarnir.

#9
28.02.2010 kl: 15:30
Komminn skrifar:

"venstre" ! er eitthvað lítið að gera í vinnunni ? ertu á helgarvakt ?

#10
28.02.2010 kl: 16:08
Atli skrifar:

Venstre, Kristján Andri er harður gegn kvótakverfinu!

#11
28.02.2010 kl: 16:24
venstre skrifar:

Ég hef hvergi sagt að KAG væri ekki á móti kvótakerfinu. Hann er hins vegar ekki fylgjandi fyrningaleið Samfylkingarinnar, skiljanlega verandi útgerðarmaður og kvótaeigandi. Sé ekki hvað það skiptir máli hvort það er mikið eða lítið að gera hjá mér. Eiga ekki allflestir helgarfrí eða ?

#12
28.02.2010 kl: 17:35
Atli skrifar:

Að hann er á móti fyrningarleiðinni og "vill viðhalda núverandi forréttindakerfi fárra?" Ef einhver vill viðhalda núverandi kerfi þá er hann með NÚVERANDI kerfi og vill ekki breytingu. Þannig að jú "Venstre" það sagðir þú víst.

Um að gera að nota frítíman í helgafríinu til að lesa sér aðeins til

#13
28.02.2010 kl: 18:21
fyrrum sjómaður skrifar:

"Atli skrifar:
Venstre, Kristján Andri er harður gegn kvótakerfinu!"

- - - Sé svo, þá hefur hann ekki ennþá tjáð sig opinberlaga með skýrum hætti um stefnu sína í fiskveiðimálum. Allt loðið sem hefur komið frá honum í fjölmiðlum og á prenti hér vestra.

#14
28.02.2010 kl: 18:43
Atli skrifar:

"Sé svo, þá hefur hann ekki ennþá tjáð sig opinberlaga með skýrum hætti um stefnu sína í fiskveiðimálum. Allt loðið sem hefur komið frá honum í fjölmiðlum og á prenti hér vestra."

Það er bara alrangt "fyrrum sjómaður" hann hefur talað gegn þessu aftur og aftur, það vita allir sem fylgjast með stjórnmálum hérna. Var fyrir stuttu með honum á fundi þar sem hann sagði beint út við fólk að hann vildi sjá breytingu á kerfinu og það strax. Á fundi á Suðureyri sagði hann það ótækt að menn gætu ekki unnið sér inn veiðireynslu því þeir væru að byrja í dag.

Skil ekki alveg hvers vegna það hefur verið ákveðið að taka Kristján Andra fyrir? Einstaklega slæm taktík hjá öflunum hér í bæ sem telja sig eiga tilkall til valda. Hann er ekki þekktur fyrir að tala loðið, hann tilheyrir flokki ( XF ) sem hefur það að sínu stærsta baráttumáli að breyta kvótakerfinu og hefur barist þar.

Þetta vita allir, og þetta veist þú líka "fyrrum sjómaður." Þvílík endemis þvæla! Kristján Andri "loðinn" í afstöðu sinni til mála ... Hefur þú hitt þennan mann? Hann er sko ekki loðinn í afstöðu sinni til neins.

#15
28.02.2010 kl: 19:22
Arnar Bergur skrifar:

Fyrrum sjómaður....
Ertu svona mikil gunga að þú þorir ekki að koma fram undir nafni?

Þú sem segir að þú sért fyrrum sjómaður...
hefuru ekki séð Kristján Andra vinna eða ?
Hefuru farið á sjó með honum?
hefuru unnið með honum?
hefuru talað við hann beint?
hefuru kynnt þér málstað hans sérstaklega?
Þekkiru hann að einhverju leiti?

Set líka spurningu við þetta, þeir einir sem fá kvóta sem sækja fiskinn eigin hendi?
Ertu sem sagt að leggja að þeir fái ekki að ráða fólk í vinnu hjá sér til þess að veiða kvótann sem þeir eiga?

En það er greinilegt að sjallar eru byrjaðir í skítkastinu....

#16
28.02.2010 kl: 20:13
fyrrum sjómaður skrifar:

Þjóðin á fiskin í sjónum.
Arnar Bergur skrifar: "til þess að veiða kvótann sem þeir eiga?" Hverjir eiga hvað? Útgerðin "kvótinn" á að vera í höndum sjómanna, útgerðarmenn sem hafa það náðugt í landi eru óþarfir.
Ég hef kynnt mér málefni Kr. Andra á prenti, þar segir m.a . Áherslur; "Lítil og meðalstór fyrirtæki ...verða að fá að starfa og dafna og mega ekki líða fyrir forréttindi þeirra stærri, td í sjávarútvegi"
"Forréttindi hinna stærri"..? Ætlar hann ekki að berjast gegn forréttindum hinna stærri? - Arnar Bergur; Þú skrifar ekki undir fullu nafni sjálfur, því ætlast þu til að aðrir geri það? En ég tel mig samnefnara fyrir sjómenn sem voru upp á sitt besta fyrir daga kvótans, sem betur hefði aldrei komið til sögunnar.

#17
28.02.2010 kl: 21:15
Arnar Bergur Guðjónsson skrifar:

Ég skrifa hér undir nafni þó það sé ekki fullt.
Ég er sá eini sem heiti Arnar Bergur á landinu...ekki erfitt fyrir þig að flétta því upp hafiru áhuga á því mister nafnleysingi!!!

Vitanlega er það rétt að það er þjóðin sem á fiskinn í sjónum, En útgerðir eru þær einu sem mega veiða þann fisk úr sjónum(í dag) og það eru takmarkanir á því hvað þeir mega veiða og eins og þú veist þá kallast það kvóti.
Ef til vill var það rangt af mér að segja að þeir eigi fiskinn...en þú hefur ekki svarað spurningu minni..

"Set líka spurningu við þetta, þeir einir sem fá kvóta sem sækja fiskinn eigin hendi?
Ertu sem sagt að leggja að þeir fái ekki að ráða fólk í vinnu hjá sér til þess að veiða kvótann sem þeir "eiga"??? (taktu eftir að eiga er innan gæsalappa)

Heldur þú að Kristján Andri hafi ekkert unnið?
hafi bara fengið þetta upp í hendurnar ?
Ef þú heldur það þá ertu svei mér þá á algjörum villigötum og
sendi allt slíkt tal þitt heim til föðurhúsa!!!

Kristján Andri hefur byggt upp sitt útgerðarfyrirtæki síðastliðin 20 ár, byrjaði með 1 bát í krókakerfinu, hann hefur svei mér þá farið margtoft á sjóinn og unnið fyrir sínu og veitt fjölda fólks starfa og bæjarfélaginu tekjur af sínum bát/bátum.

Ég sjálfur hef unnið með Kristjáni Andra og ég hef ekki fengið nein forréttindi á að vera bróðir hans...já ég endurtek..ég er yngsti bróðir hans.

En enn og aftur að þér herra nafnleysingi...komdu fram sjálfur undir fullu nafni, ég skora á þig.
láttu heyrast hver þú ert svo að aðrir sjái og viti hver þú ert. hættu þessum feluleik.

Lifðu heill.

#18
28.02.2010 kl: 21:17
Arnar Bergur Guðjonsson skrifar:

eins og þú sérð þá skrifaði ég undir fullu nafni...

#19
28.02.2010 kl: 21:32
fyrrum sjómaður skrifar:

Arnar Bergur Guðjonsson, því skrifar þú ekki um fleira sem þér liggur á hjarta? Til dæmis spillinguna kringum bæjarstjórann, hvernig hann tapaði 36 milljónum í fjármagnsstýringunni, að hans eigin sögn. Skyldi Í listinn láta rannsaka þetta, ef hann fær völdin að loknum kosningum?
Það er ekki mikið afrek að róa á plastkopp út í djúpkjaftinn, vonandi að veiðar verði gefnar frjálsar öllum sem áhuga hafa og tími plastbátanna liði undir lok. Plastbátarnir eiga ekkert erindi á sjó að vetrarlagi, lagnaðarís á Pollinum gæti hæglega skorið þá í tvennt við sjávarborð. - Það er ekki víst að ég fengi vinnu hjá Kristjáni Andra ef ég skrifaði undir fullu nafni, hvorki hjá honum né bæjarstjóranum!?

#20
28.02.2010 kl: 22:08
Guðmundur Þór skrifar:

Þessar fullyrðingar sem koma fram hér að ofan, um Kristján Andra og hans skoðanir, minna mig nú óneitanlega á söguna um Jónu Ben og skotfélagið, sem dreift var frá ákveðnum vinnustað á Ísafirði, fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar.

Í öllum bænum reynið nú að lyfta umræðunum á svolítið hærra plan, svona kjaftæði sæmir engum.
Ég vil benda nafnleysingjunum hér á síðunni á einfalda leið til að komast að hinu sanna, það er að spyja Kristján Andra sjálfan um hans skoðanir en ekki búa þær til fyrir hann.......

#21
28.02.2010 kl: 22:22
Arnar Bergur Guðjónsson skrifar:

Í fyrsta lagi bý ég ekki í Ísafjarðarbæ, í öðru lagi, veit ég ekki um spillingu bæjarstjórans ef hún er einhver, í þriðja lagi tjái ég mig um ekki eitthvað sem ég hef ekki hundsvit á.

Þú talar um að það sé ekki mikið afrek að róa á plastkopp...kannski ekki, en það gera samt ekki hver sem er, nema þeir kunni að stýra plastkopp og tilskilinn réttindi.

En allavega þá nenni ég einfaldlega ekki að sóa mínum tíma í nafnleysingja, hef nú margt annað við minn tíma að gera.

En ég er sammála Guðmundi Þór....Talaðu bara við Kristján Andra, hann mun svara þér af heiðarleika.

Lifðu heill.

#22
28.02.2010 kl: 22:51
fyrrum sjómaður skrifar:

Arnar Bergur! Það er góð regla að skipta sér ekki af málefnum í öðrum kjördæmum, a.m.k ekki opinberlega. Ég geri ráð fyrir að þú sért í betra sambandi við Kristján Andra en ég; Spurðu hann að því hvað honum finnist um að láta Intrum innheimta skuldir fyrir bæinn. Ég hef heyrt að Intrum taki um tíu þúsund kr. fyrir að senda áminningarbréf, bæjarbúar hafa þörf fyrir að nýta aurinn betur nú í hallærinu, þessi upphæð dugir minni fjölskyldu fyrir mat í viku!

"Guðmundur Þór skrifar:
Þessar fullyrðingar sem koma fram hér að ofan, um Kristján Andra og hans skoðanir"

----------- Þeir sem gefa kost á sér til setu í bæjarstjórn ættu að hafa rænu á að koma sínum skoðunum á framfæri með skýrum hætti, þannig að enginn velkist í vafa. Á það vantar mikið hjá Kristjáni Andra. - - - Það tíðkast ekki að kjósendur hringi í frambjóðendur og spyrji þá fyrir hvað þeir standi, þeir eiga að koma sínum málefnum á framfæri við kjósendur sjálfir.

#23
28.02.2010 kl: 23:03
Atli skrifar:

Það er líka góð regla að ljúga ekki uppá fólk, þú hefur hér á síðunni orðið uppvís af ógeðfeldum lygum, þvætting og drullu maki á Kristján Andra.

Svo setur þú einhverja klausu um að þeir sem bjóði sig fram eigi að setja skoðanir sínar fram þannig að enginn geti verið í nokkrum vafa eða misskiliðþ

Það er nú þannig að menn geta alltaf miskilið það sem þeir viljandi ætla sér að misskilja.

#24
28.02.2010 kl: 23:15
fyrrum sjómaður skrifar:

Atli, bentu mér á það sem ég á að hafa logið uppá Kristján Andra. Að hann vilji breytingar á kerfinu, það er ekkert nýtt, því hefur verið breytt á hverju ári síðan það var sett á. Ég hef ekki heyrt Kr. Andra segja að hann vilji kvótakerfið feigt, það sent heim til föðurhúsanna hjá LÍÚ þar sem það var búið til. Enn ein breytingin er ekki til bóta. Það er allt of mikið af fólki sem lifir á skriffinsku kringum fiskveiðarnar, þessu þarf að breyta, hvort Kristján Andri sé sama sinnis er mér því miður ekki kunnugt um.

#25
28.02.2010 kl: 23:20
Arnar Bergur Guðjonsson skrifar:

fyrrum sjómaður....

eins og ég sagði þá ætla ég ekki að rífast við nafnleysingja,
fyrir mér eru nafnleysingjar gungur....

Segi bara...
spurðu hann sjálfur eða ertu hræddur við hann?

#26
28.02.2010 kl: 23:50
Atli skrifar:

Ég þarf að byðjast afsökunar við annan nafnleysing. Venstre var ekki sá sem sagði Kristján Andra vera með núverandi kerfi. Það var "fyrverandi sjómaður", ég byðst bara afsökunar á því að bendla venstre við þá vitleysu.

En svo bendi ég bara "fyrverandi sjómanni" að það er dæmi um hans lygar, svo er líka lygar að segja hálf sannleikan, eða halda því fram að þú skrifir ekki undir nafni vegna þess að Kristján Andri myndi ekki ráða þig í vinnu annars. Án þess að hafa nokkuð fyrir sér í því.

Svo skrifarðu "Ætlar hann ekki að berjast gegn forréttindum hinna stærri?" Sem er aum tilraun til útúrsnúnings það er alveg kristaltært hvað maðurinn er að meina. Viljandi útúrsnúningur til að draga úr trúverðuleika fólks telst líka sem lygi.

Annað, fyrst þú hefur bækling Í-listans undir höndunum til að snúa útúr öllu, þá vill ég benda þér á að allir frambjóðendur eru með símanúmer og email þarna fyrir þig og aðra íbúa. Það er búið að gera allt fyrir þig til að þú getir rætt við þetta fólk ef þú hefur athugasemd.

Skrifaðu athugasemd:

ATH. IP talan þín er 38.107.191.84 og er skráð með athugasemdinni.


Vefumsjón