08.02.2010 - 12:30
Nýtt frumvarp um strandveiđar gerir ráđ fyrir 6 ţúsund tonnum
Nýtt frumvarp um strandveiðar er komið fram frá sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra Jóni Bjarnasyni. Í frumvarpinu er lagt til að veiðarnar verði festar í sessi í lögum og skipulag þeirra verði í aðalatriðum líkt og í fyrrasumar. Aflaheimildir til strandveiða verða auknar úr tæpum 4 þúsund tonnum í 6 þúsund tonn af botnfiski. Þá er gert ráð fyrir nokkrum breytingum miðað við veiðarnar á síðasta ári. Veiðitímabilið verði lengt, þannig að það hefjist 1. maí, hvert útgerðarfyrirtæki fái aðeins leyfi fyrir einn bát til strandveiða og bátar sem leigja eða selja frá sér kvóta eru útilokaðir frá veiðunum. Lagt er til að dagskammturinn verði 650 þorskígildiskíló af botnfiski, en hann var 800 kíló samanlagt af öllum tegundum í fyrra. Samhliða þessu frumvarpi leggur sjávarútvegsráðherra fram annað frumvarp til breytinga á lögum um veiðieftirlitsgjald, þar sem lagt er til að bæta 50 þúsund króna gjaldi á hvern bát sem fær leyfi til strandveiða ofaná 17.500 króna leyfisgjald. Leyfisgjaldið rennur til Fiskistofu en viðbótargjaldið á að renna beint til löndunarhafna báta sem hafa strandveiðileyfi. Nánar má lesa um frumvörpin í tilkynningu á heimasíðu ráðuneytisins.
Þegar strandveiðarnar voru teknar upp í fyrra var það gert í tilraunaskyni og ákveðið að endurskoða lögin strax á þessu ári í ljósi reynslunnar. Í þessum tilgangi var Háskólasetur Vestfjarða fengið til þess að gera úttekt á framgangi og áhrifum strandveiðanna. Úttektin liggur nú fyrir og sýna niðurstöður hennar, að almenn ánægja hafi verið um fyrirkomulag veiða meðal þeirra sem úttektin náði til. Sú skoðun var almenn meðal þeirra sem stunduðu veiðarnar í fyrra og jafnframt meðal íbúa í þeim byggðum þar sem strandveiðar voru mest stundaðar. Andstaða við strandveiðar hefur hinsvegar verið hávær frá útgerðarmönnum stærri útgerðarfyrirtækja enda stóð ekki á viðbrögðum frá Friðrik J. Arngrímssyni framkvæmdastjóra LÍÚ, sem segir á heimasíðu samtakanna: „Þetta frumvarp sjávarútvegsráðherra er fullkomin vanvirða við sjómenn og útvegsmenn sem hafa tekið á sig skerðingu aflaheimilda til þess að byggja upp fiskistofna." Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra vonar hinsvegar til að frumvarpinu verði vel tekið, því fyrir liggi að strandveiðar hafa sannað gildi sitt.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.80 og er skráđ međ athugasemdinni.