Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
18.06.2010 - 15:50

Ökum edrú í sumar

Átak IOGT gegn ölvunarakstri stendur í allt sumar
Átak IOGT gegn ölvunarakstri stendur í allt sumar
Ökum edrú er yfirskrift átaks gegn ölvunarakstri sem IOGT á Íslandi hleypti af stað nú í vikunni.  Átakið fer af stað nú í miðri HM í knattspyrnu, til þess að vekja athygli á mikilvægi þess að aka edrú heim eftir góðar stundir yfir knattspurnuleik, sérstaklega frá þeim stöðum þar sem safnast er saman og áfengi er jafnframt haft um hönd.  Birtar verða sjónvarps- og útvarpsauglýsingar þar sem einstaklingar miðla reynslu sinni af ölvunarakstri auk þess minnt verður á afleiðingar ölvunaraksturs í fjölmiðlum.  Á hverju ári eru að minnsta kosti 1000 ökumenn í umferðinni óhæfir til aksturs vegna ölvunar, segir í tilkynningu IOGT til fjölmiðla í tilefni af átakinu Ökum edrú.  IOGT á Íslandi hvetur almenning til þess að sameinast í baráttunni gegn ölvunarakstri með því að setjast aldrei undir stýri eftir neyslu áfengis eða annarra vímuefna. IOGT hvetur almenning einnig til þess að hafa áhrif á þá sem ætla að aka undir áhrifum og tilkynna til lögreglu öll slík tilfelli.

 

Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra hefur þeim ökumönnum fjölgað til muna sem teknir eru yfir efri mörkum hvað varðar áfengismagn í blóði. Þá hefur banaslysum og öðrum alvarlegum umferðarslysum, sem rekja má til ölvunar við akstur, fjölgað mikið undanfarin ár. Það helst í hendur við mikla aukningu á áfengisdrykkju á Íslandi undanfarinn ár.
• Á árunum 2005 - 2009 létust 23 einstaklingar í umferðarslysum sem rekja má til ölvunar við akstur og 352 slösuðust - þar af 62 mjög alvarlega.
• Á árunum 2005 - 2008 voru 7811 ökumenn kærðir vegna ölvunar við akstur. Þar af voru að meðaltali 31.1% yfir efri mörkum þ.e. óhæfir til að aka bifreið skv. 45. gr. Umferðarlaganna en þar stendur orðrétt: „Ef vínandamagn í blóði ökumanns nemur 1,20‰ eða meira eða vínandamagn í lofti, sem hann andar frá sér, nemur 0,60 milligrömmum í lítra lofts eða meira telst hann óhæfur til að stjórna ökutæki."en árið 2008 fjölgaði þessu hlutfalli verulega og var talan þá komin í 40%
• Árið 1994 drukku Íslendingar 4,6 lítra af hreinum vínanda en árið 2010 er sú tala komin í 7,5 og nálgast Íslendingar óðfluga Grænlendinga, Dani og Finna sem trjóna á toppnum yfir Norðurlandaþjóðir hvað varðar áfengisneyslu.


Joonas Turtonen, framkvæmdastjóri Hälsa og Trafik í Finnlandi, sem er sérstakur gestur IOGT á Íslandi vegna þessa átaks, segir að áfengis- og fíkniefnananeysla hafi aukist mikið í Finnlandi í kreppunni þar í landi. Í Finnlandi deyja tæplega 400 manns árlega af völdum umferðarslysa, þar af 90 vegna ölvunaraksturs.


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.179.207 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón