Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
25.02.2010 - 11:42

Ólína ítrekar spurningar um skuldastöđu sjávarútvegsfyrirtćkja

Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur.  Mynd Halldór Sveinbj.s.
Ólína Ţorvarđardóttir alţingismađur. Mynd Halldór Sveinbj.s.
Ólína Þorvarðardóttir varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar Alþingis hefur lagt fram fyrirspurn á Alþingi um skuldir sjávarútvegsfyrirtækja.  Spurt er um yfirfærslu skulda úr gömlu bönkunum í þá nýju, um afskriftir lána sjávarútvegsfyrirtækja, frystingu lána, heildarupphæð og skiptingu á milli gömlu og nýju bankanna.  Ólína lagði efnislega samhljóða fyrispurn um skuldameðferð sjávarútvegsfyrirtækja í bönkunum fyrir efnahags- og viðskiptaráðherra fyrir síðustu áramót, en fékk þá takmörkuð svör.  Nú freistar þingmaðurinn þess að fá fram svör frá fjármálaráðuneytinu. Svarfrestur ráðuneytisins er 2 vikur.

Fyrirspurn Ólínu Þorvarðardóttur til fjármálaráðherra um skuldameðferð og skuldastöðu sjávarútvegsfyrirtækja í íslenskum bönkum, er að finna á vef Alþingis og er svohljóðandi:

1. Hvaða verklagsreglur eru eða hafa verið viðhafðar við mat á yfirfærslu skulda sjávarútvegsfyrirtækja úr gömlu bönkunum í þá nýju?
2. Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið afskrifuð eftir bankahrunið og ef svo er, í hve miklum mæli?
3. Hafa lán sjávarútvegsfyrirtækja verið fryst eftir bankahrunið og ef svo er, um hvaða upphæðir er að ræða og til hve langs tíma?
4. Hve mikið af skuldum útgerðarfyrirtækja varð eftir í þrotabúum gömlu bankanna þriggja, sundurliðað eftir bönkum?
5. Hve stór hluti skulda útgerðarfyrirtækja fluttist yfir í nýju bankana þrjá, sundurliðað eftir bönkum?


Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.84 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón