Prófkjör Í - listans: Kosningin hafin í Ađalstrćti 24 á Ísafirđi
Kosning í prófkjöri Í - listans í Ísafjarðarbæ fer fram í Aðalstræti 24 á Ísafirði á milli klukkan 16.00 og 18.00 frá mánudeginum 22. febrúar til og með föstudeginum 26 febrúar, fyrir þá sem ekki komast til að kjósa á laugardaginn. Utan þess tíma verður hægt að kjósa utan kjörstaðar hjá formanni kjörstjórnar Smára Haraldssyni. Síminn hjá honum er 862 4017.
Prófkjörið sjálft fer fram á laugardaginn 27. febrúar 2010 verður kosið í Félagsheimilinu á Þingeyri, í Félagsbæ á Flateyri, í Bjarnaborg á Suðureyri og Aðalstræti 24 á Ísafirði. Á kjördag verða kjördeildir á Þingeyri, Flateyri og Suðureyri opnar kl. 10 - 16, en kl. 10 - 18 á Ísafirði. Kjósendur geta valið í hvaða kjördeild þeir kjósa, þ.e. þeir þurfa ekki endilega að kjósa þar sem þeir búa.
Prófkjöri Í-listans laugardaginn 27. febrúar 2010, er öllum íbúum Ísafjarðarbæjar sem hafa kosningarétt laugardaginn 29. maí 2010 og ekki eru skráðir í aðra flokka sem bjóða fram í sveitarfélaginu, heimilt að kjósa. Þeir sem taka þátt í kosningunni skulu rita nafn sitt og kennitölu á yfirlýsingu til stuðnings framboðinu.
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.80 og er skráđ međ athugasemdinni.
















Ekki bara Í listann! -------- Okkur er fariđ ađ leiđast í fréttir af Gísla og Guđfinnu, komin meir en vika. Kannski ţau ćtli saman fram međ lista...........?