Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
23.02.2010 - 09:45

Sirrý aflahćst Bolungarvíkurbáta

Sirrý ÍS 84 frá Bolungarvík.  Mynd Jón Einar Snorrason
Sirrý ÍS 84 frá Bolungarvík. Mynd Jón Einar Snorrason
Góður afli er hjá bátum í Bolungarvík þessar vikurnar, enda gæftir með eindæmum góðar. Alls hafa borist 520 tonn að landi í Bolungarvíkurhöfn það sem af er febrúarmánuði.  Sirrý ÍS trónir á toppnum yfir aflahæstu báta í Víkinni.  Hún hefur aflað 114,1 tonni það sem af er mánuðinum í 14 róðrum.  Guðmundur Einarssson ÍS kemur fast á hæla hennar með 111,4 tonn í 19 róðrum.  Einar Hálfdáns ÍS er búinn að fara í fimm róðra og aflað 84,5 tonni og Hrólfur Einarsson ÍS hefur farið 17 sinnum í róður og aflað 81 tonni.  Siggi Bjartar ÍS er kominn með 39,1 tonn í níu sjóferðum og Þorlákur ÍS hefur farið einn túr og fiskað 38,3 tonn. Gunnar Leós ÍS hefur farið átta sinnum á haf út og aflað 29,3 tonnum. Sæbjörn hefur farið í átta róðra og fiskað rétt um 9 tonn.  Páll Helgi ÍS hefur farið í fimm róðra og fengið 6.9 tonn. Snjólfur ÍS hefur farið í tvo róðra og aflað 6,5 tonn.  Þetta kemur fram í frétt á Bolungarvíkurvefnum
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.82 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón