10.03.2010 - 07:42
Sjálfstæðisflokkurinn í Ísafjarðarbæ leggur fram leiðrétt yfirlit styrktaraðila 2006: HG styrkti flokkinn um 250 þúsund krónur
Sjáflstæðisflokkurinn í Ísafjarðarbæ hefur lagt fram nýtt og leiðrétt yfirlit um stærstlu styrktaraðila flokksins við bæjarstjórnarkosningarnar árið 2006. Þar kemur fram að sjö aðilar styrktu flokkinn um 100 þúsund krónur eða meira árið 2006. Ekki er gefið upp hverjir studdu flokkinn um upphæðir sem eru undir 100 þúsund krónum, en heildarupphæð þeirra styrkja var 470 þúsund krónur. Stærsti styrkaraðili Sjálfstæðisflokksins var Hraðfrystihúsið-Gunnvör sem lét 250 þúsund krónur af hendi rakna í kosningabaráttuna vorið 2006. Athygli vekur framlag Bergþórs Ólasonar, þáverandi aðstoðarmanns Sturlu Böðvarssonar samgönguráðherra, sem leggur Sjálfstæðisflokknum til 100 þúsund krónur í eigin nafni. Hefur hann þó aldrei verið búsettur í Ísafjarðarbæ. Skutull fjallaði í síðustu viku um framlag hans, sem upphaflega var eyrnamerkt Samgönguráðuneytinu í yfirliti frá gjaldkera Fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ, en síðar var það sagt mistök og nafn Bergþórs kom í staðinn.
Þeir sem styrktu Sjálfstæðisflokkinn í Ísafjarðarbæ um 100 þúsund eða meira voru eftirtaldir:
Hraðfrystihúsið-Gunnvör hf. 250.000 kr.
Toyota á Íslandi 120.000 kr.
Íslandssaga, Suðureyri 100.000 kr.
KNH ehf. 100.000 kr.
Kambur ehf., Flateyri 100.000 kr.
Bergþór Ólason 100.000 kr.
Bensín Orkan ehf. 100.000 kr.
Á bæjarráðsfundi á mánudag var lagt fram bréf Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Ísafjarðarbæ dagsett 2. mars sl., þar sem gerð er grein fyrir fjárframlögum til framboðs Sjálfstæðisflokksins í Ísafjarðarbæ vegna sveitarstjórnarkosninganna 2006. Þar með hefur Sjálfstæðisflokkurinn svarað áskorun bæjarstjórnar frá því síðasta sumar. Í - listinn birti yfirlit í nóvember yfir alla sem styrktu framboðið um meira en tíu þúsund krónur, en Framsóknarflokkurinn gaf aðeins upp heildarupphæð framlaga til flokksins en enga sundurliðun.
Deila á Facebook

Skrifaðu athugasemd:
ATH. IP talan þín er 38.107.191.83 og er skráð með athugasemdinni.