22.02.2010 - 13:40
Snjóbyssa á Tungudal: Kynning í kvöld og á morgun
Í kvöld og á morgun verður kynning á snjóbyssu TechnoAlpin á Skíðasvæðinu á Tungudal á Ísafirði. Eins og kunnugt er lánaði fyrirtækið byssuna á svæðið og tveir fulltrúar þess koma í dag til að kynna búnaðinn fyrir heimamönnum. Kynningin hefst í kvöld um klukkan 20 (mánudag) og stendur yfir allan daginn á morgun (þriðjudag). Allir áhugamenn eru hvattir til að mæta og kynna sér búnaðinn, sem er ekki eins einfaldur og margir halda, segir í tilkynningu frá upplýsingafulltrúa Ísafjarðarbæjar.
Snjóbyssur eru til að framleiða snjó. Þær eru hlaðnar með vatni, en skjóta frá sér snjókristöllum. Snjórinn er notaður til að bera í skíðabrekkur, þegar ekki er nóg af honum frá náttúrunnar hendi. Þannig má ná betri nýtingu á skíðalyftum og skíðasvæðum. Á Akureyri og víðar hefur þetta gefið góða raun og nú er að sjá hvort tækið virkar jafn vel hér á Dalnum.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.82 og er skráđ međ athugasemdinni.