Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
30.07.2010 - 11:30

Sorpútbođ Vesturbyggđar og Tálknafjarđar ógilt: Samningur viđ Gámaţjónustuna felldur úr gildi

Patreksfjörđur er ađalstađurinn í Vesturbyggđ. Mynd Ágúst Atlason
Patreksfjörđur er ađalstađurinn í Vesturbyggđ. Mynd Ágúst Atlason
Sorpútboð sem sveitarfélögin Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur létu fara fram í vetur var dæmt ógilt af Kærunefnd útboðsmála.  Samningur sveitarfélaganna við Gámaþjónustuna hf. um sorphirðu er því felldur úr gildi.  Kærunefndin felldi þennan úrskurð vegna þess að sveitarfélögunum væri óheimilt að meta tilboð út frá öðrum forsendum en verði einu saman.  Þetta kom fram í fréttum Ríkisútvarpssins í morgun.

Það var Íslenska gámafélagið sem kærði samninginn.  Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppur buðu út sorphirðu- og förgun snemma í vetur.  Mörg frávikstilboð bárust. Þegar tilboð voru opnuð í mars, var tilboði Gámaþjónustunnar tekið á grundvelli þriggja matsþátta. Íslenska gámafélagið kærði, því samkvæmt lögum má ekki meta tilboð út frá öðrum þáttum en verði, nema matsaðferðin sé tíunduð rækilega í útboðinu. Það virðist ekki hafa verið gert. Auk þess að samningurinn var ógiltur voru sveitarfélögin dæmd til að greiða Íslenska gámafélaginu tæpa hálfa milljón í málskostnað. Vesturbyggð og Tálknafjörður eru með samning sem gildir út árið og felur í sér flutning á sorpi til Ísafjarðar í brennslustöðina Funa.  Nýjum sveitarstjórnum í Vestur-Barðastrandarsýslu gefst því ráðrúm til að endurskoða sín mál fram að áramótum.  Áður hefur komið fram að sorpmál í Ísafjarðarbæ eru í endurskoðun, sem tekið hefur meira en heilt ár, án þess að niðurstaða sé fengin.

 


Deila á Facebook
#1
30.07.2010 kl: 11:48
Kristján P skrifar:

Sorpaksturinn ţvers og kruss um firđina mengar meir en Funi. Amk međan notast er viđ bíla međ díeselvélum, Sorpinu á ađ eyđa ţar sem ţađ verđur til, hćtta ţessu keyrslu rugli. Fólk ćtti ađ kaupa sér gamaldags mjólkurbrúsa, sturta í hann úr fernunum í Bónus, láta ţá um ađ farga umbúđum sem ţeir selja........................

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.83 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón