Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
09.02.2010 - 11:33

Útför Steingríms Hermannssonar í dag

Steingrímur Hermannsson 1928-2010, ţingmađur Vestfirđinga og forsćtisráđherra
Steingrímur Hermannsson 1928-2010, ţingmađur Vestfirđinga og forsćtisráđherra
Steingrímur Hermannsson fyrrum þingmaður Vestfirðinga og forsætisráðherra lést að morgni mánudagsins 1. febrúar, 81 árs að aldri.  Útför hans fer fram í dag klukkan 14.00 frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Steingrímur var kjörinn á þing fyrir Framsóknarflokkinn í Vestfjarðakjördæmi árið 1971 og þjónaði kjördæminu allt til 1987, þegar hann fór í framboð í Reykjaneskjördæmi. Hann var formaður Framsóknarflokksins á árunum 1979 til 1994.  Steingrímur var ráðherra dóms- og kirkjumála og landbúnaðar árið 1978 og síðar samgöngu- og sjávarútvegsráðherra til 1983 þegar hann varð forsætisráðherra í fjögur ár.  Hann tók aftur við forsæti ríkisstjórnar árið 1988 - 1991, þegar Þjóðarsáttin var gerð og tókst að koma böndum á verðbólguna.

Steingrímur Hermannsson fæddist 22. júní 1928 í Reykjavík.  Foreldrar hans voru Vigdís Oddný Steingrímsdóttir og Hermann Jónasson, lögreglustjóri í Reykjavík, alþingismaður Strandasýslu, formaður Framsóknarflokksins og forsætisráðherra.  Fyrri kona Steingríms var Sara Jane Donovan og áttu þau þrjú börn.  Síðari kona hans var Guðlaug Edda Guðmundsdóttir.  Börn þeirra eru  Hermann Ölvir, Hlíf og Guðmundur alþingismaður Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi.

Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.84 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón