Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
30.07.2010 - 07:07

Verk-Vest: Helgarferđ um Snćfellsnes 13.-15. ágúst - síđustu forvöđ ađ skrá sig

Lóndrangar á Snćfellsnesi
Lóndrangar á Snćfellsnesi
Verkalýðsfélag Vestirðinga efnir til helgarferðar á Snæfellsnes dagana 13. - 15. ágúst.  Á síðasta ári fóru félagar Verkalýðsfélagsins í ferð um Eyjafjörð og sigldu alla leið út í Grímsey.  Nú er stefnan tekin á Breiðafjörð og Snæfellsnes. Lagt verður af stað frá Ísafirði eftir hádegi á föstudag og ekið að Laugum í Sælingsdal þar sem verður gist. Á laugardag verður farin hringferð um nesið og síðan gist í Stykkishólmi. Farið verður í heimsókn í Bjarnarhöfn á sunnudag og að því búnu farið með Baldri yfir Breiðafjörð.  Enn eru nokkur sæti laus og félagsmenn eru hvattir til að nota tækifærið og skrá sig í ferðina.  Nánari upplýsingar um ferðatilhögun á heimasíðu Verk-Vest.

Í landslagi og náttúrufari Snæfellsness er margt að finna sem jafnvel Vestfirðingum mun þykja mikið til um.  Snæfellsnes er rómað fyrir náttúrufegurð og þar eru fjölbreytilegri jarðmyndanir en á flestum öðrum stöðum á landinu. Yst á nesinu er einn af þremur þjóðgörðum landsins og sá eini sem liggur að sjó. Þar er að finna margar merkilegar minjar um sjósókn fyrri tíma.  Ótal sérstæðir og fagrir staðir verða á vegi þeirra sem fara í þessa ferð, t.d. Arnarstapi, Lóndrangar og Þúfubjarg, þar sem Kolbeinn Jöklaskáld kvaðst á við Kölska forðum og Djúpalónssandur og Dritvík sem geyma minjar um merkilega útgerðarsögu. Yfir öllu þessu gnæfir Snæfellsjökull, eitt af formfegustu fjöllum Íslands, sem margir telja óþrjótandi orkuuppsprettu.
Deila á Facebook

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.83 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón