Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
08.09.2010

Atli Ţór Fanndal: Ţöggun hefur aldrei leitt til réttarbóta

Atli Ţór Fanndal
Atli Ţór Fanndal
Það er áhugavert að fylgjast með viðbrögðum við ummælum Jenis av Rana. Það sem er auðvitað merkilegast er hvað almenningur er meðvirkur með þessum fordómum á sama tíma og hann vill fjarlægja sig. Jenis av Rana er málaður sem einhversskonar öfgamaður, sem hann er að sumu leyti. Það hefur þó komið í ljós það sem flestir sem þekkja málefni hinsegin fólks að í þessu tilviki talaði hann ekkert fyrir neinum jaðarskoðunum í Færeyjum.


Þjóðir hafa ekki eina skoðun, en þær eiga það til að hafa sameiginlega persónu. Þar með er ekki sagt að allir séu partur af henni. Því minni sem samfélög eru því meira ráðandi getur ein skoðun orðið, en líklega aldrei algild. Færeyingar eru ofboðslega vinalegir, gestrisnir og kurteisir. Ísland og Færeyjar eiga nánast sama tungumál og ótrúlega svipaða sögu. Það er eðlilegt að okkar samskipti séu mikil og gagnkvæm virðing ríki. Það er þó ekki það sama að vera kurteis og að vera fordómalaus.

...
Meira
07.09.2010

Níels A. Ársćlsson: Sannleiksnefnd um kvótakerfiđ

Sjómenn viđ störf. Mynd Níels A. Ársćlsson
Sjómenn viđ störf. Mynd Níels A. Ársćlsson
Áður en Alþingi fer að fjalla í alvöru um væntanlega skýrslu nefndar Jóns Bjarnasonar sjávarútvegsráðherra um endurskoðun kvótakerfisins er nauðsynlegt að sett verði á laggirnar „SANNLEIKSNEFND" sem fái heimild til að kalla til sín fyrrum og núverandi sjómenn, fiskverkafólk og útgerðarmenn....
Meira
06.09.2010

Níels A. Ársćlsson: Ţjóđaratkvćđi um aflamark eđa sóknarstýringu

Níels A. Ársćlsson
Níels A. Ársćlsson
Þar sem löngu ER ljóst að hin furðulega LÍÚ-nefnd um endurskoðun kvótakerfisins mun engu skila nema tillögum um óbreytt kvótakerfi, þá ER víst að kvótakerfið verður að fara í þjóðaratkvæði og það sem fyrst.  Fyrirfram ER ljóst hver niðurstaðan verður enda 80-90% af þjóðinni á móti þessu illræmdasta kvótakerfi veraldar.

Kvótakerfi sem skaðar hvert einasta mannsbarn, (fædd og ófædd) á íslandi um milljónir króna hvert einasta ár.
Kvótakerfi sem býður mönnum upp á að kasta mörgum tugum þúsunda tonna af fiski í sjóinn hvert einasta ár.
Kvótakerfi sem býður mönnum upp á stórfellt svindl og undanskot frá hafnarvigt.
Kvótakerfi sem býður mönnum að brjóta á mannréttindum hvern einasta dag án þess að þar til bær yfirvöld skerist í leikinn.
Kvótakerfi sem alið hefur af sér geðsjúklinga sem ekki veigra sér við að leggja niður heilu sjávarþorpin í nafni hagræðingar.
Kvótakerfi sem leyft hefur mönnum að stynga af með hundruði milljarða úr greininni og skilja sjávarbyggðirnar eftir í rjúkandi rústum.
Kvótakerfi sem hneppt hefur þúsundir manna í sára fátækt, eignamissi, atvinnumissi og félagslegar hörmungar.
Kvótakerfi sem ól af sér algert hrun íslenska lýðveldisins.

Færeyingar vita hvað þeir syngja þegar kemur að stjórnun fiskveiða enda vegnar þeim vel.
02.09.2010

Kristinn H. Gunnarsson: Haiti - dýrkeypt sjálfstćđi fátćkasta ríkisins

Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn H. Gunnarsson
Haiti er líklega fátækasta ríki á vesturhveli jarðar.  Jarðskjálftinn mikli í janúar bætti gráu ofan á svart.  Talið er að um 250 þúsund manns hafi látið lífið og eignatjón varð gífurlegt.  Ameríski þróunarbankinn áætlaði kostnaðinn um 1800 milljarða króna.  Víst er að Haiti búar eru öðrum þjóðum verr í stakk búnir til þess að axla nýjar byrðar vegna endurbyggingar innviða þjóðfélagsins.  En þeir hafa fengið mikill stuðning og aðstoð hvaðanæva úr heiminum, meðal annars frá Íslendingum.

Nokkrir þekktir einstaklingar, þar á meðal málfræðingurinn Noam Chomsky og rithöfundurinn Naomi Klein hafa ritað bréf og skorað á Frönsk stjórnvöld að endurgreiða Haiti gífurlegar skaðabætur sem fyrsta svarta lýðveldinu var gert að greiða Frökkum til þess að bæta þeim skaðann af sjálfstæði Haiti....
Meira
26.08.2010

Jón Steinsson: Af hverju er LÍÚ á móti tilbođsleiđinni?

Jón Steinsson hagfrćđingur
Jón Steinsson hagfrćđingur
Forsvarsmenn útgerðarmanna hafa tekið mjög harða afstöðu gegn „tilboðsleiðinni" í sjávarútvegi. Að þeirra mati er „samningaleiðin" mun fýsilegri. Ástæðan fyrir þessu er sáraeinföld. Forsvarsmenn LÍÚ gera sér grein fyrir því að það er miklu líklegra að þeim takist að halda auðlindagjaldinu niðri ef samningaleiðin er farin.
...
Ég hef búið til tvær glærukynningar um tilboðsleiðina fyrir þá sem vilja kynna sér frekar út á hvað hún gengur og þá kosti sem hún hefur fram yfir samningaleiðina. Fyrst er kynning á útfærslu á tilboðsleiðinni þar sem um framlengjanlega eins árs leigu er að ræða og framsal á leigðum aflahlutdeildum er óheimilt (útgerðir geta hins vegar ákveðið að framlengja ekki leigusamninga sína): (Leigu)tilboðsleiðin. Í hinni kynningunni fjalla ég um grunngerð tilboðsleiðarinnar: Tilboðsleiðin....
Meira
Fyrri síđa
1
234567727374Nćsta síđa
Síđa 1 af 74
Vefumsjón