Benedikt Bjarnason: Opin stjórnsýsla og skýr framtíđarsýn
Öflugt öryggisnet er aldrei mikilvægara en þegar kreppir að og þá skiptir miklu að byggt sé á gildum jafnaðarstefnunnar. Taka verður á þeirri hugsun sem virðist ríkja hjá bæjaryfirvöldum að velta öllum hækkunum á íbúa svæðisins. Ég vil beita mér fyrir því að sjónarmið bæjarbúa fái að heyrast og leitað sé lausna með íbúum. Hvað get ég gert sem íbúi Ísafjarðarbæjar gert til að lækka kostnað í rekstri bæjarins? Ísafjörður hefur í gegnum árin verið þekktur fyrir gott menningarlíf. Hvað erum við tilbúin að gera til að viðhalda þessu góða orðspori?
Staða okkar er ekki eins góð og við hefðum kosið og því verður að vanda vel til verka þegar ákvarðanir eru teknar, engu að síður þarf að standa vörð um skólastarfið. Frá leikskóla til Háskólaseturs, þannig sköpum við grunn til framtíðar og búa þannig að íþrótta- og tómstundastarfi að öll börn geti tekið þátt í uppbyggilegu tómstundastarfi sjálfum sér og samfélaginu til heilla.
Ég er fylgjandi því að verkefni séu færð í ríkara mæli til sveitarstjórna. Grunnskólinn er gott dæmi um færslu á verkefnum sem vel tókst til, engu að síður þarf að tryggja tekjur sveitarfélaganna þegar verkefni eru færð til þeirra. Það er því ekki gott til afspurnar þegar Ísafjarðarbær sækir á ríkisvaldið um framkvæmdir í bæjarfélaginu að vera gerð afturreka vegna þess að undirbúnings vinnu sé ábótavant.
Stjórnsýslan í bæjarfélaginu á að vera öllum bæjarbúum opin og gegnsæ. Þegar gjöld bæjarins eru hækkuð eigum við sem greiðendur ekki að sætta okkur við svör eins og óhjákvæmilegt eða annað í þeim dúr. Fjármál Ísafjarðarbæjar eiga að vera aðgengileg á heimasíðu bæjarins þar sem allir málaflokkar eru sundurliðaðir. Hvað kostar að reka bæjarstjórn, hver er ferðakostnaður bæjarins, hvað kostar einn bæjarstjóri með hlunnindum, hvaða stjórnmálaflokka styrkir bæjarstjórnin, hverjir fá styrki frá bænum og hvers vegna, hverjir fá verk á vegum bæjarins og hver er kostnaðurinn við verkin. Svona er hægt að halda lengi áfram, allar upplýsingarnar eru til staðar en engin vilji hefur verið hjá bæjarstjórn Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í Ísafjarðarbæ að hafa þessi gögn aðgengileg á netinu. Þrátt fyrir að sama samsetning sé á bæjarstjórnum Kópavogs og Ísafjarðarbæjar þurfum við ekki að viðhafa sama verklag og þeir.
Mikilvægt er að það veljist sigurstranglegur listi sem kemur til með að vinna glæstan sigur í kosningunum. Fólk með góðar áherslur og skýra framtíðarsýn.
Kjósandi góður: Kosið verður í prófkjöri Í - listans laugardaginn 27. febrúar. Prófkjörið er opið öllum þeim sem ekki eru flokksbundnir í þá þeim flokkuma sem bjóða sig fram gegn Í- listanum. EKKI þarf að skrá sig í flokk til að taka þátt í prófkjörinu.
Með von um stuðning þinn,
Benedikt Bjarnason
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.84 og er skráđ međ athugasemdinni.















