Landsmálavefur á Vestfjörđum | skutull@skutull.is
26.02.2010

Lína Björg Tryggvadóttir: Gerum betur - Í- listann til ábyrgđar

Lína Björg Tryggvadóttir
Lína Björg Tryggvadóttir

Ég hef alltaf verið stolt af því að vera Vestfirðingur.  Vestfirðirnir í heild sinni skarta fögur og heillandi landslagi.  Sem Ísfirðingi finnst mér fátt fallegra en Skutulsfjörðurinn á blíðviðrisdögum.  Það hefur marga kosti að búa á Vestfjörðum og við eigum að halda þeim kostum á lofti.  En við þurfum líka að horfast í augu við ókostina og reyna síðan að sníða þá burt eftir megni.  Í dag ætti flestum að vera það ljóst að fjárhagsstaða bæjarfélagsins er ekki sem best og því þarf að velta hverjum steini og íhuga alla möguleika áður en fjármunum er ráðstafað.  Hins vegar eru málefni sem ekki má lengur bíða með, eins og t.d uppbygging hjúkrunarheimilis á Ísafirði og sorpmál Ísafjarðarbæjar.

Ef við ætlum að halda upp góðu velferðarkerfi í sveitafélaginu þá verðum við að halda uppi góðu og heilbrigðu atvinnulífi. Síðustu ár hafa verið erfið á Íslandi, en við Vestfirðingar höfum þurft að búa við kreppu mun lengur en höfuðborgarsvæðið og nágrenni. Fyrirtæki hafa lokað eða farið úr byggðalaginu og þar með fara tekjur úr bænum. Ég tel að sveitafélagið verði að taka virkan þátt í að byggja atvinnulífið upp með því að skapa eftirsóknavert umhverfi fyrir fyrirtæki og fjölskyldur. Við þurfum að vera samkeppnishæf í að lokka til okkar fólk sem sýnir frumkvæði í atvinnusköpun. Ísafjarðarbær hefur því miður ekki verið samkeppnishæfur á þessu sviði síðustu ár. Íbúar eru að borga hæsta útsvarið, hæstu leikskólagjöldin, háan flutningskostnað, hátt raforkuverð og svona má því miður áfram telja. Þessi kostnaður gerir það að verkum að fyrirtækin sem hérna starfa sitja ekki við sama borð og fyrirtæki annarstaðar. Það þarf að tryggja að fyrirtækin sem hérna eru sitji við sama borð og önnur fyrirtæki í landinu hvað varðar flutningskostnað, raforkuöryggi , samgöngur og fjarskipti.

Það eru mörg tækifæri í þessu bæjarfélagi sem þarf að finna og vinna að og byggja þannig upp blómlegri og farsælli byggð. Ég hef ýmsar hugmyndir varðandi það hvernig standa mætti að því.  Ég vona að þið gefið mér tækifæri til þess að sanna mig með því að kjósa mig í framvarðarsveit Í- listans á laugardaginn 27. febrúar.


Bestu kveðjur,
Lína Björg Tryggvadóttir
Frambjóðandi Í -listans.


Deila á Facebook
#1
26.02.2010 kl: 14:20
Njáll skrifar:

Lína, hvađ ţarf fjárhagsstađan ađ vera mikiđ betri? 1 milljarđur? 5 milljarđar eđa 10? Hvađ varđ af "orkubúspeningunum"? Fyrir ţá átti ađ gera svo margt, ţađ minnti mig á vísuna "Ef ađ ég hjá mömmu..." Ef ekki kemur fólk til sögunnar sem kann međ peninga ađ fara, ţá munu nýir "orkubúspeningar" ekki breyta neinu.

Skrifađu athugasemd:

ATH. IP talan ţín er 38.107.191.80 og er skráđ međ athugasemdinni.


Vefumsjón