Sigurđur Pétursson: Sterkari saman
Í - listinn í Ísafjarðarbæ hefur nú starfað í hartnær fjögur ár. Fjórir bæjarfulltrúar, fjöldi fulltrúa í nefndum og ráðum og traustur stuðningsmannahópur, karla og kvenna, úr öllum fjörðum sveitarfélagsins, hafa unnið saman að stefnumálum félagshyggju og frjálslyndis hér í okkar bæ. Samstarf ólíkra einstaklinga með ólíkar áherslur í einstökum málum hefur gengið greiðlega öll þessi fjögur ár, enda miklu meira sem sameinar, heldur en sundrar. Við höfum leist úr ágreiningi, stillt saman strengi og sameinast um áherslur í öllum stærstu málum og bæði náð að hafa áhrif á umræður og ákvarðanir, jafnvel þó að aðrir flokkar hafi haft forræði í sveitarfélaginu. Með samstilltu átaki höfum við náð meiri árangri. En það er samt ekki nóg, því að markmiðið hlýtur að vera að ná meirihluta í bæjarstjórn og að Í-listinn setji mark sitt á stefnu og störf bæjarstjórnar næstu árin.
Ég vil nota tækifærið og þakka öllum þeim fjölda sem unnið hafa að bæjarmálum með Í - listanum undanfarin ár. Af bæjarfulltrúum eru auk þess sem þetta ritar í framboði nú Arna Lára Jónsdóttir og Jóna Benediktsdóttir. Magnús Reynir Guðmundsson hefur boðað að hann dragi sig í hlé að vori og verður mikill sjónarsviptir, þegar hann lætur af störfum í bæjarstjórn. Nýtt fólk, ungt og kraftmikið, hefur gefið kost á sér til framboðs, og er það mikið gleðiefni á þeim erfiðu tímum sem við upplifum nú. Það verður vandi fyrir fólk að velja úr þeim hópi í dag. Sérstakt gleðiefni hefur verið að kynnast nýjum frambjóðendum á sameiginlegum fundum okkar og finna þann áhuga og hugmyndaauðgi sem einkennir það. Hér er saman komin hópur sem er tilbúinn til stærri átaka.
Íbúar Ísafjarðarbæjar! Ég er tilbúinn að leiða Í - listann til kosninga í vor og til áhrifa næstu ár í okkar sveitarfélagi. Ég hvet alla til að taka þátt í prófkjörinu í dag og nýta sér þann rétt að hafa áhrif á næstu bæjarstjórn. Saman getum við myndað það afl sem velta mun stóru hlassi. Við erum sterkari saman.
Sigurður Pétursson,
sagnfræðingur og bæjarfulltrúi
Deila á Facebook
Skrifađu athugasemd:
ATH. IP talan ţín er 38.107.191.84 og er skráđ međ athugasemdinni.















